Ferill 1027. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2157  —  1027. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um samskipti vegna fjárhagsstöðu Landhelgisgæslu Íslands.


     1.      Hvaða daga árið 2022 sendi ráðuneytið minnisblað eða aðrar upplýsingar til Landhelgisgæslu Íslands um fjárhagsstöðu stofnunarinnar miðað við málaskrá eða dagsetningar tölvubréfa?
    Ráðuneytið og Landhelgisgæsla Íslands eiga í reglulegum samskiptum vegna fjárhagsstöðu stofnunarinnar og fara þau samskipti ýmist fram með minnisblöðum, bréfum, tölvubréfum, símtölum eða fundum. Það tíðkast þó ekki í framkvæmd að ráðuneytið sendi Landhelgisgæslunni minnisblöð, heldur fara þau samskipti oftast fram í gegnum fundi, tölvubréf og símtöl. Á árinu voru mikil samskipti við stofnunina ýmist með tölvubréfum, símtölum eða fundum og eru ekki öll slík samskipti skráð í málaskrá.

     2.      Hvaða daga árið 2022 sendi Landhelgisgæsla Íslands minnisblað eða aðrar upplýsingar til ráðuneytisins um fjárhagsstöðu stofnunarinnar miðað við málaskrá eða dagsetningar tölvubréfa?
    Eins og rakið er í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar eiga ráðuneytið og Landhelgisgæsla Íslands í reglulegum samskiptum vegna fjárhagsstöðu stofnunarinnar sem ýmist fer fram með minnisblöðum, bréfum, tölvubréfum, símtölum eða fundum.
    Eftirfarandi samskipti falla undir fyrirspurnina og hafa verið skráð í málaskrá:
    8. febrúar 2022, tölvupóstur.
    15. febrúar 2022, tölvupóstur.
    29. mars 2022, minnisblað.
    4. apríl 2022, minnisblað.
    28. apríl 2022, minnisblað.
    16. ágúst 2022, minnisblað.
    4. október 2022, tölvupóstur.
    5. október 2022, tölvupóstur.
    5. desember 2022, minnisblað.
    19. desember 2022, minnisblað.
    Þessu til viðbótar hafa verið ýmis símtöl við starfsmenn stofnunarinnar við undirbúning fjármálaáætlunar, fjárlaga og fjárhagsstöðu stofnunarinnar sem hafa ekki verið formlega skráð í málaskrá. Þá hefur enn fremur verið fundað með stofnuninni á umræddu tímabili.

     3.      Fékk ráðuneytið upplýsingar fyrir 5. desember 2022 um fjárhagsstöðu Landhelgisgæslu Íslands sem skrá hefði átt skv. 11. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, en minnisblað um fjárhagsstöðuna er dagsett 5. desember 2022?
    Eins og rakið er í svari við 2. tölul. voru skráð í málaskrá ýmis samskipti við stofnunina um fjárhagsstöðuna fyrir þann 5. desember sl.