Ferill 1112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2170  —  1112. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um Ríkisútvarpið.


     1.      Hver var heildarfjöldi starfsfólks á launaskrá Ríkisútvarpsins árin 2021 og 2022? Hve margir voru fastir starfsmenn og hve margir voru verktakar á þeim tíma?
    Meðalfjöldi starfsfólks Ríkisútvarpsins og RÚV Sölu var 276 árið 2021 (meðaltal stöðugilda 252) og 276 árið 2022 (meðaltal stöðugilda 254).
    Starfsmaður á launaskrá hjá Ríkisútvarpinu getur aldrei þegið verktakalaun á meðan hann er í launþegasambandi við Ríkisútvarpið. Það kemur fyrir að starfsmaður sem hefur unnið í einhvern tíma sem verktaki hjá RÚV sé ráðinn sem launamaður.

     2.      Hvaða efni keypti Ríkisútvarpið eða gerðist meðframleiðandi að til styrktar sjálfstæðri gerð sjónvarpsþátta, kvikmynda, heimildarmynda, útvarpsþátta eða talsetningar á sama árabili?
2021 2022
Heildarfjöldi verkefna 120 113
Heildarkostnaður 534.309.564 655.499.425

     3.      Hverjir af þeim aðilum sem Ríkisútvarpið keypti efni af, eða gerðist meðframleiðandi að efni með, á sama árabili voru samhliða í föstu ráðningarsambandi við Ríkisútvarpið?
    Starfsmanni sem er í launþegasambandi við Ríkisútvarpið er óheimilt að vera meðframleiðandi að efni eða þiggja verktakagreiðslur.

     4.      Hversu hárri prósentu af innheimtu útvarpsgjaldi varði Ríkisútvarpið til kaupa á efni af sjálfstæðum framleiðendum, eða til meðframleiðslu, til að styrkja og efla sjálfstæða gerð sjónvarpsþátta, kvikmynda, heimildarmynda, útvarpsþátta eða talsetningar á sama árabili?

    Árið 2021 var hlutfallið 12,02% og árið 2022 var það 13,45%.
    Krafan um kaup af sjálfstæðum framleiðendum var á þessu tímabili 12% samkvæmt grein 2.1 í þjónustusamningi milli Ríkisútvarpsins og ráðuneytisins.