Ferill 1202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2171 — 1202. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um styrki og samstarfssamninga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða fyrirtæki og félagasamtök hafa notið styrks frá ráðuneytinu eða sjóðum á vegum ráðuneytisins eða gert samstarfssamning við þessa aðila frá 1. janúar 2017 þar til nú, þar sem samanlögð upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var 10 millj. kr. eða hærri? Svar óskast sundurliðað eftir árum, eftir því hvers eðlis styrkur eða samstarfssamningur var og eftir því hversu oft styrkur eða samstarfssamningur var endurnýjaður.
Samstarf við íslensk félagasamtök á sviði þróunarsamvinnu, neyðar- og mannúðaraðstoðar.
Í samræmi við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023 leggur utanríkisráðuneytið áherslu á náið og gott samstarf við félagasamtök á sviði þróunarsamvinnu, mannúðar- og neyðaraðstoðar með það að leiðarljósi að bregðast við brýnni neyð, bæta lífskjör íbúa þróunarríkjanna og stuðla að framgangi heimsmarkmiðanna. Auk þess er stuðningur við félagasamtök mikilvæg leið til að byggja upp þróttmikið og fjölbreytt borgarasamfélag í þróunarríkjunum. Unnið er samkvæmt reglum nr. 1035/2020 um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja ásamt viðeigandi verklagsreglum sem birtar eru á heimasíðu Stjórnarráðsins.
Ráðuneytið hefur gert rammasamninga við fjögur stærstu íslensku félagasamtökin á þessu sviði, Rauða krossinn á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill og SOS barnaþorpin, en auglýsir jafnframt a.m.k. einu sinni á ári styrki til umsóknar, vegna nýliðaverkefna, styttri verkefna og lengri tíma þróunarsamvinnuverkefna, auk styrkja til kynningar- og fræðsluverkefna. Einnig hafa verið veittir styrkir til og gerðir samningar við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Núgildandi rammasamningar ná til verkefna á sviði þróunarsamvinnu, mannúðaraðstoðar og kynningar- og fræðslumála og gilda til ársloka 2024, en rammasamningar við landsnefndirnar tvær og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem voru undirritaðir í ársbyrjun gilda til ársloka 2025. Rammasamningarnir veita félagasamtökunum fyrirsjáanleika sem auðveldar skipulagningu verkefna og eykur viðbragðsflýti samtakanna, t.d. þegar neyðarástand skapast og er í samræmi við bestu starfsvenjur þar að lútandi. Smærri félagasamtök sem eru ekki með rammasamning geta sótt um styrki til þróunarsamvinnu-, kynningar- og fræðsluverkefna, sem úthlutað er a.m.k. einu sinni á ári.
Samstarf við atvinnulífið.
Í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu 2019–2023 er jafnframt lögð áhersla á samstarf við atvinnulífið með það að markmiði að einkageirinn leggi sitt af mörkum til verðmæta- og atvinnuskapandi verkefna í þróunarlöndum í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu var settur á fót árið 2018 með það markmiði að styðja við verkefni sem efla sjálfbæran hagvöxt í þróunarríkjum, en utanríkisráðuneytið hefur um árabil starfað með atvinnulífinu að verkefnum í þróunarríkjum. Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins starfar samkvæmt reglum nr. 1035/2020 um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu og þar til gerðum verklagsreglum sem eru aðgengilegar á vefsíðu Stjórnarráðsins. Sérstök áhersla er á verkefni sem hafa þverlægar áherslur í þróunarsamvinnu Íslands; mannréttindi, kynjajafnrétti og sjálfbæra þróun, að leiðarljósi. Verkefnin þarf að vinna í samstarfi við og með mótframlagi frá aðila á vettvangi.
Yfirlit yfir samninga um styrki 2017–2023.
Framangreindir styrkir eru veittir samkvæmt reglum nr. 1035/2020 um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu. Styrkveitingar skulu vera í samræmi við áherslur stjórnvalda um framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, sbr. 6. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu, nr. 121/2008, ákvæði 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, reglugerð um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018, og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Á árinu 2017 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2017 | |||
| Mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð í Sómalíu vegna þurrka og ófriðar | 15.000.000 kr. | Maí 2017 – febrúar 2018 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna átaka í Sýrlandi, ACT SYR181 |
25.000.000 kr. | Desember 2017 – desember 2018 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og vopnaðra átaka í Jemen | 30.000.000 kr. | Maí 2017 – desember 2017 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og yfirvofandi hungursneyðar í Sómalíu | 15.000.000 kr. | Maí 2017 – desember 2017 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Suður-Súdan | 15.000.000 kr. | Maí 2017 – desember 2017 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Sýrlandi | 15.000.000 kr. | Maí 2017 – desember 2017 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Barnaverndar og ofbeldisforvarnir meðal sýrlenskra flóttamanna og viðtökusamfélaga í Jórdaníu | 18.478.748 kr. | Desember 2017 – mars 2019 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Fjárhagsaðstoð fyrir einstæðar mæður í Líbanon | 18.130.000 kr. | Desember 2017 – desember 2018 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Vernd flóttafólks frá Sýrlandi í Tyrklandi | 18.331.252 kr. | Desember 2017 – desember 2018 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Örugg blóðgjöf handa sýrlensku flóttafólki í Líbanon og viðtökusamfélagi þeirra | 20.060.000 kr. | September 2017 – desember 2017 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Neyðaraðstoð í Miðafríkulýðveldinu | 12.000.000 kr. | Maí 2017 – desember 2017 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Samþætt þróunarsamvinnuverkefni í Kebribeyah í Eþíópíu | 80.736.000 kr. | Maí 2017 – desember 2020 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Fjölskylduefling í Tulu Moye í Eþíópíu | 67.576.558 kr. | Maí 2017 – desember 2020 |
| Kynningar- og fræðsluverkefni | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Landsnefnd UNICEF á Íslandi | Samstarfssamningur | 22.500.000 kr. | Janúar 2017 – desember 2019 |
Á árinu 2018 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2018 | |||
| Mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur um mannúðaraðstoð | 311.911.323 kr. | 2018–2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna þurrka í Eþíópíu | 25.000.000 kr. | Mars 2018 – desember 2018 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna | 25.000.000 kr. | Ágúst 2018 – maí 2019 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna jarðskjálfta og flóðbylgju í Mið–Sulawesi héraði í Indónesíu | 20.000.000 kr. | Desember 2018 – september 2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna neyðar í Írak | 20.000.000 kr. | Desember 2018 – desember 2019 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Svæðasjóður Sýrlands og nágrannaríkja sem aðstoðar börn vegna ástandsins í Sýrlandi | 26.500.000 kr. | September 2018 – mars 2019 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Aðstoð við flóttafólk frá Venesúela í Kólumbíu | 19.432.997 kr. | Desember 2018 – desember 2019 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Bætt lífsskilyrði fjölskyldna sem líða vegna HIV/alnæmis í Rakai og Lyatonde, Úganda | 40.252.125 kr. | Júní 2018 – desember 2021 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Samþætt heilbrigðisverkefni í nærsamfélögum Úganda | 23.837.390 kr. | Júní 2018 – apríl 2019 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Samfélagsleg endurhæfing í kjölfar ebólufaraldursins í Síerra Leóne | 14.2021.928 kr. | Júní 2018 – desember 2018 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Samfélagsdrifið heilbrigðisverkefni í Síerra Leóne | 30.712.611 kr. | Desember 2018 – desember 2019 |
| Samband íslenskra kristniboðsfélaga | Kamununo Girl's Secondary School í Kenía | 10.388.000 kr. | Júní 2018 – desember 2019 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Atvinnuhjálp unga fólksins í Sómalíu og Sómalílandi | 51.525.788 kr. | Júní 2018 – desember 2021 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Fjölskylduefling á Filippseyjum | 45.460.656 kr. | Desember 2018 – desember 2021 |
Á árinu 2019 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynninga- og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2019 | |||
| Mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Rauði krossinn á Íslandi | Mannúðaraðstoð til stríðshrjáðra í Sýrlandi | 31.500.000 kr. | Janúar 2019 – desember 2019 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Neyðaraðstoð vegna fellibylsins Idai í Malaví | 7.000.000 kr. | Apríl 2019 – september 2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna neyðar í Suður Súdan | 20.000.000 kr. | Janúar 2019 – ágúst 2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna átakanna í Sýrlandi | 20.000.000 kr. | Janúar 2019 – desember 2019 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Neyðaraðstoð fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Jemen | 19.570.000 kr. | Janúar 2019 – mars 2019 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Neyðaraðstoð fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Jemen | 15.000.000 kr. | Mars 2019 – júní 2019 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Samband íslenskra kristniboðsfélaga | Framhaldsskólar 2020. Bætt aðstaða í Korkou, Miskowny og Riwo í Kenía | 17.570.000 kr. | Október 2019 – mars 2021 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Valdefling ungs fólks í fátækrarhverfum Kampala, Úganda | 51.080.119 kr. | Desember 2019 – desember 2023 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Vörn gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Tógó | 36.097.124 kr. | Desember 2019 – desember 2022 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Samfélagsdrifið þróunarverkefni í Síerra Leóne | 92.242.710 kr. | Desember 2019 – desember 2022 |
| Kynningar- og fræðslustyrkir | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Landsnefnd UN Women á Íslandi | Samstarfssamningur, framlenging um eitt ár | 13.000.000 kr. | Janúar 2019 – desember 2019 |
| Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | Samstarfssamningur, framlenging um eitt ár | 8.000.000 kr. | Janúar 2019 – desember 2019 |
Á árinu 2020 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2020 | |||
| Mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Barnvæn svæði og barnavernd í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó | 32.768.620 kr. | September 2020 – febrúar 2021 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Viðbragðssjóður vegna Sýrlands. Aðstoð við börn og fyrirbyggjandi aðgerðir vegna COVID-19 | 29.355.000 kr. | Júlí 2020 – desember 2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna átaka í Sýrlandi | 20.000.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna neyðar í Írak | 10.000.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Mannúðaraðstoð til stríðshrjáðra í Sýrlandi | 27.145.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Viðbót við rammasamning vegna jarðskjálfta í Króatíu | 10.000.000 kr. | Desember 2020 – janúar 2021 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Aukinn viðnámsþróttur gegn loftslagsbreytingum í Kebribeyah-héraði í Eþíópíu | 144.960.000 kr. | Desember 2020 – desember 2024 |
| Samband íslenskra kristniboðsfélaga | Styrking innviða fjögurra skóla í NV- Kenía 2020–2021 | 15.878.000 kr. | Október 2020 – mars 2022 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Aukinn viðnámsþróttur nærsamfélaga II í Malaví | 142.840.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2023 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Brúun hins stafræna bils í Ghana, Malaví, Síerra Leóne og Suður Súdan | 85.741.765 kr. | September 2020 – ágúst 2024 |
| Kynningar- og fræðsluverkefni | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Landsnefnd UNICEF á Íslandi | Samstarfssamningur, framlenging um eitt ár | 10.000.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Landsnefnd UN Women á Íslandi | Samstarfssamningur, framlenging um eitt ár | 10.000.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | Samstarfsamningur, framlenging um eitt ár | 10.000.000 kr. | Janúar 2020 – desember 2020 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Fyrirtæki | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Credit info group hf. | Aukið aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármálaþjónustu á viðráðanlegum kjörum á Fílabeinsströndinni og Senegal | 165.375 EUR | Mars 2020 – desember 2020 |
Á árinu 2021 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2021 | |||
| Mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna átaka í Tigray-fylki í Eþíópíu | 20.000.000 kr. | Janúar 2021 – desember 2021 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Mannúðaraðstoð vegna átakanna í Sýrlandi | 10.000.000 kr. | Janúar 2021 – desember 2022 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Barnvæn svæði og barnavernd í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (áframhald) | 30.135.604 kr. | Ágúst 2021 – janúar 2022. |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur, framlenging um eitt ár | 82.600.000 kr. | Janúar 2021 – desember 2021 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Viðbótarframlag inn í rammasamning árslok | 65.000.000 kr. | Desember 2021 – desember 2021 |
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Styrktarfélagið Broskallar | Menntun í ferðatösku í Kenía | 16.000.000 kr. | Júní 2021 – maí 2022 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Sjálfbær og samfélagsdrifin endurheimt skóglendis í Síerra Leóne | 71.872.482 kr. | Nóvember 2021 – desember 2023 |
| Rauði krossinn á Íslandi | Uppbygging á getu landsfélaga í Afríku til að takast á við ofbeldi, mismunun og útilokun | 21.500.059 kr. | Október 2021 – mars 2023 |
| Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Dregið úr ofbeldi gagnvart stúlkum og drengjum í Síerra Leóne | 19.707.555 kr. | September 2021 – september 2022 |
| Samband íslenskra kristniboðsfélaga | Efling afskiptra nemenda í Pókot-sýslu í Kenía | 15.276.000 kr. | Október 2021 – desember 2022 |
| Stelpur rokka | Stelpur rokka áfram í Tógó | 13.900.000 kr. | Maí 2021 – október 2024 |
| Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins | |||
| Fyrirtæki | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Fisheries Technologies | CARICE-verkefnið í Saint Lucia og Dominica Jamaica | 100.000 EUR | Október 2021 – september 2024 |
| GEG ehf. | Notkun jarðvarma til að koma á fót kæligeymslum fyrir epli á Norður-Indlandi | 200.000 EUR | Mars 2021 – desember 2023 |
| Hananja ehf. | Rephaiah-verkefnið í Malaví | 184.584 EUR | Apríl 2021 – apríl 2024 |
| Intellecon ehf. | Bætt fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni | 194.948 EUR | Apríl 2021 – apríl 2023 |
| Áveitan ehf. | Sjálfbært samfélag, leið til betra lífs með hjálp til sjálfsbjargar í Búrkína Fasó | 200.000 EUR | Apríl 2021 – júní 2023 |
| Kerecis hf. | Íslenskt sáraroð til brunameðhöndlunar í Kaíró, Egyptalandi | 200.000 EUR | Desember 2021 – júní 2023 |
| Sjóklæðagerðin ehf., 66.Norður |
Faðmur fyrir konur á flótta í Tyrklandi | 186.967 EUR | Janúar 2022 – júní 2024 |
Á árinu 2022 var gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2022 | |||
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| ABC barnahjálp | Kvennadeild í Norður-Úganda | 12.195.304 kr. | Maí 2022 – ágúst 2022 |
| Styrktarfélagið Broskallar | Menntun í ferðatösku í Kenía | 32.000.000 kr. | Maí 2022 – apríl 2024 |
| Rammasamningar um þróunarsamvinnu | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur vegna þróunarsamvinnuverkefna | 375.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Rammasamningur vegna þróunarsamvinnuverkefna | 240.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Barnaheill Save the Children á Íslandi | Rammasamningur vegna þróunarsamvinnuverkefna | 155.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Rammasamningur vegna þróunarsamvinnuverkefna | 255.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Rammasamningar um mannúðaraðstoð | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur vegna mannúðaraðstoðar | 420.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Rammasamningur vegna mannúðaraðstoðar | 150.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Barnaheill Save the Children á Íslandi | Rammasamningur vegna mannúðaraðstoðar | 180.000.000 kr. | Mars 2022 – desember 2024 |
| Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins | |||
| Fyrirtæki | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| RetinaRisk | Augnskimun vegna sykursýki til að koma í veg fyrir blindu á Indlandi | 10.000.000 kr. | Júlí 2022 – júlí 2023 |
| Reykjavík Geothermal | Jarðhitarannsóknastofa í Eþíópíu | 200.000 EUR | Júlí 2022 – september 2024 |
| Össur hf. | Þróunaraðstoð Össurar til fórnarlamba stríðsátaka í Úkraínu | 200.000 EUR | Júní 2022 – október 2023 |
Það sem af er árs 2023 hefur verið gengið til samninga um styrki þar sem upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var hærri en 10 m.kr. til eftirfarandi félagasamtaka vegna þróunarsamvinnuverkefna og/eða mannúðaraðstoðar. Til landsnefnda stofnana Sameinuðu þjóðanna, vegna kynningar og fræðslu um málefni þróunarsamvinnu og til aðila atvinnulífs vegna þróunarsamvinnuverkefna:
| 2023 (það sem af er árs) | |||
| Þróunarsamvinna | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Rauði krossinn á Íslandi | Viðbót við rammasamning | 31.000.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2023 |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Viðbót við rammasamning | 17.200.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2023 |
| Barnaheill Save the Children á Íslandi | Viðbót við rammasamning | 15.400.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2023 |
| SOS barnaþorpin á Íslandi | Viðbót við rammasamning | 12.400.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2023 |
| Kynningar- og fræðslumál | |||
| Félagasamtök | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Landsnefnd UN Women á Íslandi | Rammasamningur um kynningar- og fræðslumál á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála 2023–2025 | 45.000.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2025 |
| Landsnefnd UNICEF á Íslandi | Rammasamningur um kynningar- og fræðslumál á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála 2023–2025 | 36.000.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2025 |
| Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | Rammasamningur um kynningar- og fræðslumál á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála 2023–2025 | 36.000.000 kr. | Janúar 2023 – desember 2025 |
| Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins | |||
| Fyrirtæki | Verkefni | Heildarupphæð samnings | Samningstími |
| Fisheries Technologies | CARICE-verkefnið, framhald | 14.000.000 kr. | Apríl 2023 – febrúar 2024 |
Alls fóru 15 vinnustundir í að taka svarið saman.