Ferill 1039. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2177 — 1039. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um hampsteypu.
1. Hvernig samrýmist hampsteypa íslenskum stöðlum og reglum í byggingariðnaði?
Hampsteypa er byggingarvara sem ekki fellur undir samhæfðan staðal og þar af leiðandi er ekki gerð krafa um CE-merkingu. Hampsteypa fellur því undir III. kafla laga um byggingarvörur, nr. 114/2014, þar sem m.a. er farið fram á að framleiðandi skuli afla staðfestingar aðila sem ráðherra viðurkennir á nothæfi vörunnar. Framleiðanda ber að lýsa eiginleikum vörunnar í stöðluðu skjali, yfirlýsingu um nothæfi byggingarvöru, auk þess að koma á fót framleiðslustýringu í verksmiðju. Hampsteypa samrýmist því ágætlega íslenskum reglum í byggingariðnaði hvað varðar markaðssetningu hennar þegar um er að ræða hampsteypueiningar sem framleiddar eru í verksmiðju.
Hampsteypa er ekki eingöngu framleidd sem einingar og notuð sem slík heldur er einnig hægt að blanda hana á byggingarstað og móta í hentugar stærðir, en þannig má draga úr skilum milli eininga. Í slíkum tilfellum er því ekki mögulegt að uppfylla kröfur III. kafla laga um byggingarvörur um framleiðslustýringu. Hins vegar má finna undanþáguákvæði í 9. gr. laganna frá slíkum kröfum, sem getur átt við ef um er að ræða byggingarvöru sem framleidd er á byggingarstað til ísetningar í tiltekið mannvirki.
2. Kæmi til greina að nota hampsteypu í auknum mæli í ljósi þess að hún bindur kolefni og hefur jákvæð umhverfisáhrif umfram önnur byggingarefni?
Það er mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) að frekari rannsóknir séu nauðsynlegar til að geta metið notkunarhæfi hampsteypu við íslenskar aðstæður og þá hvaða notkunarmöguleika hún hafi í íslenskum byggingum. Eins þarf að tryggja að efnið virki með öðrum byggingarefnum og skapi ekki vandamál í nærliggjandi byggingarefnum og byggingarhlutum því að það notast sjaldan eitt og sér.
Hampsteypa hefur hvorki þrýsti- né togþolseiginleika hefðbundinnar steypu og er því ekki nothæf sem berandi byggingarefni. Í flestum tilvikum er hampsteypa notuð sem einangrunarefni eða sem innveggjahleðslur, mest þá sem forsteyptir hleðslusteinar. Mat HMS á efniseiginleikum hennar er að hljóðísog er gott, hún hefur nokkuð lága rúmþyngd og ágæta einangrunarhæfni. Hampsteypan er mjög gufuopið efni og rakadrægt, hefur góða varmarýmd og ágæta efniseiginleika til að geyma raka og sleppa honum aftur til baka í umhverfið.
Rannsóknir hafa sýnt að hampsteypa er viðkvæm fyrir hitabreytingum í þornunarferli, sem hefur áhrif á eiginleika hennar, og þar er kuldi einna helst áhrifaþáttur. Tilraunir hafa verið gerðar og eru í undirbúningi víðs vegar í Evrópu til að skoða mismunandi notkunarmöguleika. Blöndun hennar, grófleiki hampsins, þjöppun og magn bindiefna (kalks) er afar mismunandi og getur hampsteypa þar af leiðandi haft mismunandi efniseiginleika. Framleiðsla við stýrðar aðstæður er einn besti kosturinn til að hámarka gæði hennar. Með vísan til framangreinds verður að telja að staðsteypa eða önnur hrávinnsla á verkstað sé því vandasöm við íslenskar aðstæður ef tryggja á gæði hennar. Efnið hefur langan útþornunartíma og gæti haft í för með sér lengri framkvæmdatíma. Rannsóknir á hentugri efnisblöndu fyrir íslenskt veðurfar hafa ekki verið gerðar enn sem komið er, svo vitað sé. Askur – mannvirkjarannsóknasjóður styrkti verkefni þessu tengt og hafa styrkþegar hug á að reisa tilraunahús í sumar til að rannsaka áhrif íslensks veðurfars á efnið. HMS fylgist með rannsókninni og fær niðurstöður hennar til rýni og til að meta frekari rannsóknarþörf.