Ferill 1203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2183  —  1203. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um þróun fjölda starfsmanna hjá sveitarfélögum.


     1.      Hvernig hefur heildarfjöldi starfsmanna tíu stærstu sveitarfélaga landsins þróast frá árinu 2010 til dagsins í dag?
    Ráðuneytið óskaði eftir milligöngu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að afla upplýsinga vegna fyrirspurnarinnar. Eftirfarandi svör byggjast á svörum sambandsins.
    Eftirfarandi tafla sýnir þróun stöðugilda í tíu fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Um er að ræða stöðugildi í samstæðu viðkomandi sveitarfélaga, þ.e. A- og B-hluta. Til A-hluta telst sú starfsemi sem fjármögnuð er að mestu leyti með skatttekjum. Í B-hluta er að finna starfsemi sem að litlu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, svo sem hafnir, veitur, félagslegt leiguhúsnæði og hjúkrunarheimili.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Talnaefnið sem hér er birt er byggt á könnunum sambandsins, en þar er miðað við fjölda stöðugilda í apríl/maí ár hvert. Í þessum könnunum er einkum leitað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna eftir stéttarfélögum eða heildarsamtökum þeirra vegna kjarasamninga.
    Mjög er mismunandi milli sveitarfélaga hversu viðamikill B-hlutinn er og torveldar það samanburð milli þeirra. Í ársreikningum margra sveitarfélaga koma fram í skýringum upplýsingar um fjölda stöðugilda, ýmist að meðaltali á viðkomandi ári eða í lok þess. Í flestum tilvikum er um að ræða stöðugildi í samstæðu. Í ársreikningum Reykjavíkurborgar, Reykjanesbæjar og Akureyrarbæjar koma þó fram tölur um stöðugildi bæði í samstæðu A- og B-hluta og í A-hluta. Stöðugildi í B-hluta borgarinnar hafa verið um 15% af stöðugildum samstæðu. Undanfarin ár hafa stöðugildi í B-hluta Reykjanesbæjar verið um 10–12%. Í B-hluta Akureyrarbæjar voru um 20% stöðugilda samstæðu þangað til bærinn ákvað að skila rekstri hjúkrunarheimila til ríkisins. Almennt má ætla að um 10% stöðugilda séu í B-hluta.

     2.      Hvernig hefur fjöldi stjórnenda þróast hjá fyrrgreindum sveitarfélögum og undirstofnunum þeirra? Óskað er eftir að þróun fjölda starfsmanna og stjórnenda verði sett í samhengi við þróun á fjölda íbúa sveitarfélags.
    Engar upplýsingar eru fyrirliggjandi um fjölda „stjórnenda“, enda er hugtakið í senn loðið og teygjanlegt. Eftirfarandi tafla sýnir fjölda stöðugilda á þúsund íbúa í hverju fyrrgreindra sveitarfélaga.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     3.      Hefur verkefnum verið útvistað á tímabilinu þannig að starfsmönnum hafi fækkað vegna þess og þá hvenær á tímabilinu?
    Engar upplýsingar eru til um útvistun og þyrfti að sækja þær til hvers og eins sveitarfélags. Rétt er að benda á að Akureyrarbær skilaði rekstri hjúkrunarheimila til ríkisins sem endurspeglast í þeim tölum sem hér eru dregnar fram, en stöðugildum bæjarins fækkaði um nær 40 frá 2021 til 2022.
    Um útvistun er þannig lítið vitað en á því tímabili sem hér er lagt undir hafa orðið ýmsar breytingar á verkefnum sveitarfélaga og starfsmannaþörf og því hvernig störf eru talin:
     1.      Árið 2011 tóku sveitarfélögin yfir rekstur málaflokks fatlaðs fólks. Fyrir liggja tölur um þróun stöðugilda í þessum málaflokki frá 2018 til 2021. Samkvæmt þeim fjölgaði stöðugildum úr 1.941 í 2.587, eða um réttan þriðjung.
     2.      Árið 2021 tók gildi breyting á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Fól breytingin í sér að hlut einstakra sveitarfélaga í byggðasamlögum skyldi færa inn í ársreikninga þeirra og fjárhagsáætlanir. Mörg sveitarfélög brugðust við breytingunni árið 2022 og uppgefnum stöðugildum margra hefur væntanlega fjölgað vegna þessara breytinga í reikningshaldi. Engin tök eru á að meta hversu mikil þessi áhrif eru.
     3.      Í flestum kjarasamningum sem voru undirritaðir veturinn 2019–2020 er kveðið á um heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna í allt að 36 virkar vinnustundir á viku. Ætla má að stöðugildum hafi fjölgað í sveitarfélögum vegna þessa, en áhrifin eru vitaskuld mest í vaktavinnu.

     4.      Hvert hefur verið launahlutfall hvers árs á framangreindu tímabili?
    Í eftirfarandi töflu eru laun og tengd gjöld sýnd sem hlutfall af tekjum. Um er að ræða A-hluta starfsemi sveitarfélaga. Tekið skal fram að breyting lífeyrisskuldbindinga er ekki reiknuð hér sem launatengd gjöld. Það er álitaefni, enda má líta á þá færslu sem aukaiðgjald vegna starfsmanna sem eru í gömlu B-sjóðunum.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.