Ferill 1064. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2185  —  1064. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um láglendisveg um Mýrdal og göng í gegnum Reynisfjall.


     1.      Hvað líður vinnu við umhverfismat vegna lagningar láglendisvegar um Mýrdal og ganga í gegnum Reynisfjall? Hvenær er umhverfismatsins að vænta?
    Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er vinna við umhverfismat framkvæmdarinnar langt komin. Matsáætlun var kynnt í desember 2021 og álit Skipulagsstofnunar á matsáætluninni var gefið út 8. apríl 2022. Frá þeim tíma hefur verið unnið að matsskýrslu og voru drög að umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar vegna framkvæmdarinnar kynnt fyrir Mýrdalshreppi í apríl 2023. Í kjölfar þeirrar kynningar var óskað eftir nánari skýringum og frekari vinnu við útfærslu valkosta. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í júní og matsskýrslan verði þá send Skipulagsstofnun til athugunar. Í framhaldinu verði matsskýrslan kynnt almenningi og hagsmunaaðilum til umsagnar. Álit Skipulagsstofnunar á framkvæmdinni ætti svo að liggja fyrir í framhaldinu, eða á haustmánuðum 2023.

     2.      Hver er staðan á hönnuninni á þessum vegi og göngum og hvenær er áætlað að framkvæmdir hefjist?
    Samhliða vinnu við umhverfismat framkvæmdarinnar hefur Vegagerðin unnið að forhönnun vegar, jarðganga og sjóvarna. Alls hafa verið til skoðunar fimm valkostir sem lagðir eru fram í umhverfismatsskýrslu. Hringvegur um Mýrdal og jarðgöng undir Reynisfjall voru verkefni sem fjallað var um í lögum um samvinnuverkefni þar sem gert var ráð fyrir að gjaldtaka af umferð stæði undir fjármögnun framkvæmdarinnar, a.m.k. að hluta. Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir hefjast.

     3.      Liggur fyrir niðurstaða úr rannsóknum á berglögum í Reynisfjalli sem framkvæmdar voru með borunum?
    Boraðar hafa verið könnunarholur í tengslum við undirbúning framkvæmdanna. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni voru alls boraðar 6 könnunarholur við munnasvæði jarðganganna. Þá voru boraðar þrjár kjarnaholur uppi á Reynisfjalli með um 300 m millibili sem eru rúmlega 200 m djúpar. Niðurstöður þeirra rannsókna liggja fyrir og liggja til grundvallar við forhönnun jarðganga og kostnaðarmat þeirra.
    Eftirfarandi mynd sýnir legu ganga:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.