Ferill 964. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2196 — 964. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur um úrræði til að komast á vinnumarkað.
1. Er unnið að því í ráðuneytinu að efla starfsþátttöku þeirra einstaklinga sem falla ekki undir starfsendurhæfingarúrræði VIRK en hafa ekki tekið þátt á vinnumarkaði í lengri tíma vegna veikinda eða stoðkerfisvandamála?
2. Er unnið að því í ráðuneytinu að fjölga hlutastörfum eða stuðla að fjölgun hlutastarfa fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu? Ef svo er, hvernig er sú vinna?
3. Hvernig hyggst ráðuneytið stuðla að því að fólk með skerta starfsgetu sem er ekki á vinnumarkaði komist aftur á vinnumarkað?
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur verið unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að yfirgripsmiklum breytingum fyrir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
Fyrstu skref við innleiðingu nýs kerfis hafa þegar verið tekin. Frítekjumark örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hefur verið nær tvöfaldað og ný lög tekið gildi um lengingu á tímabili endurhæfingarlífeyris sem hvort tveggja er mikilvægt til að stuðla að frekari atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu.
Þá er að störfum samhæfingarnefnd um velferð og virkni á vinnumarkaði en nefndinni er falið að vinna tillögu til ráðherra að vinnumarkaðsstefnu með áherslu á jöfn tækifæri til vinnu og velferð fólks á vinnumarkaði. Nefndin mun fjalla um mögulegar leiðir til að fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum, til að mynda með samkomulagi ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Markmið þess er að tryggja fólki með mismikla starfsgetu fjölbreytt störf, bætt lífskjör og viðunandi starfsaðstæður og þannig auka fjölbreytileika og fjölga tækifærum til þátttöku á vinnumarkaði. Þá mun nefndin skoða áhrif loftslags- og tæknibreytinga á þróun vinnumarkaðarins, þ.m.t. ólíkar starfsgreinar og þjóðfélagshópa. Enn fremur er nefndin að skoða hvernig megi bæta gagnaöflun og gagnavinnslu um vinnumarkaðinn. Nefndin mun einnig leita leiða til að stuðla að aukinni velferð á vinnumarkaði með áherslu á aðgerðir til að styðja við endurkomu og draga úr ótímabæru brotthvarfi af vinnumarkaði. Loks verði nefndinni falið að móta heildstæða stefnu um málefni ungs fólks á vinnumarkaði, þar sem áhersla verði á að lækka hlutfall ungmenna og ungs fólks sem er ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun (e. NEET, Not in Employment, Education or Training).
Í maí var undirrituð viljayfirlýsing af hálfu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, Vinnumálastofnunar, VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs og Samtaka atvinnulífsins, um stóraukinn einstaklingsmiðaðan stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu. Markmiðið er að fyrirbyggja ótímabært brotthvarf ungs fólks með geðraskanir af vinnumarkaði, auk þess að auka samfélagslega virkni ungmenna sem tilheyra svokölluðum NEET-hópi, þ.e. eru ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun. 450 millj. kr. verður varið til þessa verkefnis yfir þriggja ára tímabil. Notuð verður aðferðafræði sem byggist á einstaklingsmiðaðri ráðgjöf til að finna störf á almennum vinnumarkaði og styðja við fólk eftir að það fær vinnu. Aðferðin er gagnreynd starfsendurhæfing (e. Individual Placement and Support) sem skilað hefur framúrskarandi árangri hér á landi sem og annars staðar á Norðurlöndunum. Grunnhugmyndin er sú að hægt sé að finna störf fyrir öll þau sem vilja vinna óháð hindrunum, svo sem af geðrænum eða félagslegum toga.
Allt sem að framan er talið eru liðir í aðgerðum í tengslum við heildarendurskoðun í málefnum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega þar sem áhersla er meðal annars lögð á aðgerðir til að fjölga hlutastörfum og sveigjanlegum störfum og búa til lagalega umgjörð og hagræna hvata til að verkefnið geti gengið vel.
4. Hversu margir starfsmenn ráðuneytisins eru með skerta starfsgetu?
Um þessar mundir er einn sameiginlegur starfsmaður félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins með skerta starfsgetu starfandi fyrir ráðuneytin.