Ferill 1148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2205  —  1148. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.


     1.      Hvernig hafa fjárhæðir skv. 6.–8. gr. reglugerðar um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, nr. 905/2021, og samkvæmt sambærilegum greinum eldri reglugerða þróast undanfarin 20 ár? Óskað er að upphæðir komi fram á verðlagi þess tíma og uppreiknaðar til verðlags 1. júní 2023.
    Í fylgiskjali I má sjá hvernig fjárhæðir skv. 6.–8. gr. reglugerðar nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, og samkvæmt sambærilegum greinum eldri reglugerða hafa þróast undanfarin 20 ár. Fram koma fjárhæðir á verðlagi þess tíma og uppreiknaðar fjárhæðir til verðlags 1. júní 2023. Í aftasta dálki efri töflunnar (2023 ný upphæð) kemur fram hverjar fjárhæðirnar væru ef þær hefðu hækkað samkvæmt vísitölu neysluverðs.

     2.      Hversu margir einstaklingar hlutu slíkar uppbætur og styrki á sama tímabili? Óskað er að fram komi meðalupphæð og að upplýsingar séu sundurliðaðar eftir árum og tegund uppbóta og styrkja.
    Í fylgiskjali II kemur fram hversu margir einstaklingar hlutu uppbætur og styrki vegna bifreiðakaupa á sama tímabili og meðalfjárhæðir greiðslna. Upplýsingar eru sundurliðaðar eftir árum og tegund uppbóta og styrkja.
    Athygli er vakin á því að ekki liggja fyrir marktæk gögn hjá Tryggingastofnun ríkisins fyrir árin 2003 og 2004.


Fylgiskjal I.


Styrkir og uppbætur vegna bifreiðakaupa, sbr. 1. tölul. fyrirspurnar.


www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s2205-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Styrkir og uppbætur vegna bifreiðakaupa, sbr. 2. tölul. fyrirspurnar.


www.althingi.is/altext/pdf/153/fylgiskjol/s2205-f_II.pdf