Ferill 1153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2209  —  1153. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um lög um kynrænt sjálfræði og kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu.


     1.      Hvaða breytingar hafa verið gerðar á reglum um það hvaða læknismeðferð fellur undir sjúkratryggingar almannatrygginga í kjölfar gildistöku laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019?
    Ekki hafa verið gerðar breytingar á reglugerð nr. 722/2009, um lýtalækningar sem sjúkratryggingar almannatrygginga taka til, frá því að hún var gefin út 2009. Sjúkratryggingar Íslands eru að vinna tillögur að breytingum á reglugerðinni.

     2.      Hvaða meðferðir sem falla undir reglugerð nr. 722/2009, um lýtalækningar sem sjúkratryggingar almannatrygginga taka til, og eru hluti af kynstaðfestandi meðferð eru afmarkaðar við tiltekið kyn?
    Í reglugerðinni eru heimildir Sjúkratrygginga Íslands til greiðsluþátttöku vegna tiltekinna undanþága bundnar við kynskráningu umsækjanda. Í undirbúningi eru breytingar á reglugerðinni og í þeim tillögum gert ráð fyrir því að með staðfestingu transteymis Landspítala um að einstaklingur sé í kynleiðréttingarferli sé hægt að horfa fram hjá þessari kvöð um kynskráningu. Eftir breytingar á reglugerðinni þarf heimild Sjúkratrygginga Íslands til greiðsluþátttöku ekki að tengjast ákveðinni kynskráningu í þjóðskrá.

     3.      Hvaða áform eru uppi um að endurskoða framangreindar reglur þannig að þær samræmist betur þeim réttindum sem leiðir af lögum um kynrænt sjálfræði? Telur ráðherra ástæðu til að kveða á um að réttur til kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu sé óháður skráningu kyns í þjóðskrá svo að kynvitund einstaklinga njóti viðurkenningar og réttur þeirra til að skilgreina kyn sitt sé virtur?
    Í fylgiskjali með fyrrgreindri reglugerð eru einu liðirnir sem eru bundnir við kyn (konur) þeir sem snúa að háreyðingarmeðferð, þ.e. liðir 34, (35) og 36. Svo eru liðir sem snúa að aðgerðum á brjóstum, brjóstaminnkun/brjóstastækkun og aðgerðum vegna brjóstasigs, þar sem talað er um annað eða bæði brjóst „fullþroska konu“. Þetta á við liði 40, 41, 42, 43, (47) og 48. Samsvarandi liðir (45) og 46 miða við brjóst karla. Ekki eru aðrir liðir í fylgiskjalinu sem eru sérstaklega bundnir við kyn. Verið er að vinna breytingar á reglugerðinni þar sem m.a. er lögð til breyting á þessum liðum þannig að þeir taki tillit til fólks í kynleiðréttingarferli.