Ferill 1152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2230  —  1152. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Kristrúnu Frostadóttur um aðgengi að heilbrigðisþjónustu.


     1.      Hver er lengsta vegalengd sem fólk þarf að fara til að nálgast fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu líkt og heilsugæslu? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, ber heilbrigðisumdæmum að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu á svæðinu, þar á meðal heilsugæsluþjónustu. Á myndinni hér að ofan, sem fengin er úr þjónustukorti Byggðastofnunar, má sjá dreifingu þeirra um landið. 1 Það liggur í hlutarins eðli að fjarlægðin er mest utan alfaraleiðar og á hálendinu. Á byggðu bóli er einna lengst í starfsstöð heilbrigðisstofnunar á svæðinu frá Skaftafelli að Jökulsárlóni, að heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri í vestri og Höfn í Hornafirði í austri, eða um 100 km.
    Greiningu á fjarlægðum að fyrsta stigs þjónustu í heilbrigðisumdæmi Austurlands má nálgast í skýrslunni In-depth accessibility study Annex to Digital Health Care and Social care – Regional development impacts in the Nordic countries. 2 Niðurstöður er varða fjarlægð að fyrsta stigs þjónustu má sjá á mynd 25 þeirrar skýrslu:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hvaða viðmið gilda um endurgreiðslu ferðakostnaðar og gilda þau einnig fyrir þau sem sækja sér þjónustu heilsugæslu um langan veg? Eru viðmiðin hin sömu fyrir börn og fullorðna?
    Um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innan lands gildir 30. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og reglugerð nr. 1140/2019 um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innan lands.
    Í 2. gr. reglugerðarinnar segir að þurfi læknir að vísa sjúkratryggðum frá sér til óhjákvæmilegrar sjúkdómsmeðferðar á opinberum sjúkrastofnunum eða hjá öðrum aðilum heilbrigðiskerfisins þar sem sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði sjúkratryggðra, ýmist á grundvelli samnings eða gjaldskrár Sjúkratrygginga Íslands, taka Sjúkratryggingar Íslands þátt í ferðakostnaði samkvæmt reglugerðinni. Kostnaður vegna ferða til tannlækninga og tannréttinga þar sem sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði sjúkratryggðra, sbr. reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar, fellur einnig undir reglugerðina.
    Þannig segir í 3. gr. reglugerðarinnar að Sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði við tvær ferðir sjúkratryggðs á 12 mánaða tímabili þegar um er að ræða nauðsynlega ferð, a.m.k. 20 km vegalengd á milli staða, til að sækja óhjákvæmilega sjúkdómsmeðferð hjá þeim aðilum sem sérstaklega eru tilgreindir í 3. gr. reglugerðarinnar til greiningar, meðferðar, eftirlits eða endurhæfingar. Skilyrði er að þjónustuna sé ekki hægt að fá í heimabyggð og að ekki sé unnt að nota að bíða eftir skipulögðum lækningaferðum til heimabyggðar. Að jafnaði gildir ákvæðið um ferðir sem taka styttri tíma en eina viku, nema um sé að ræða innlögn á sjúkrahús eða lengri sjúkdómsmeðferð. Samkvæmt 2. mgr. sama ákvæðis taka Sjúkratryggingar Íslands þátt í ferðakostnaði vegna ítrekaðra ferða samkvæmt sömu skilyrðum og í 1. mgr. ef um er að ræða alvarlega sjúkdóma, svo sem illkynja sjúkdóma, nýrnabilun, alvarlega hjartasjúkdóma, alvarlega sjúkdóma barna, alvarlega geðsjúkdóma, alvarleg vandamál í meðgöngu, tæknifrjóvgunarmeðferðir og tannlækningar, skv. IV. kafla reglugerðar nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar. Sjúkratryggingar Íslands taka einnig þátt í ferðakostnaði vegna ítrekaðra ferða, samkvæmt sömu skilyrðum og tilgreind eru í 1. mgr., þegar um er að ræða fyrirbyggjandi meðferð sem ætlað er að koma í veg fyrir illkynja sjúkdóm vegna erfðaþátta.
    Í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar segir að endurgreiðsla flugferða takmarkist við hámark tveggja flugferða á hverjum sjö dögum. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiði 2/3 hluta kostnaðar af fargjaldi með áætlunarferð eða sé eigin bifreið notuð 2/3 hluta kostnaðar sem miðast við 31,61 kr. á ekinn km. Greiðsluhluti sjúkratryggðs verði þó aldrei hærri en 1.500 kr. í hverri ferð. Fari hluti sjúkratryggðs yfir 10.000 kr. á 12 mánaða tímabili skuli greiðsluhluti hans aldrei verða hærri en 500 kr. í hverri ferð það sem eftir er tímabils.
    Í 3. mgr. 3. gr. segir jafnframt að Sjúkratryggingar Íslands greiði fargjald fylgdarmanns sé um að ræða áætlunarferðir og sjúkratryggður sé yngri en 18 ára eða ef sjúkratryggður er ekki fær um að ferðast á eigin vegum. Ávallt er greitt fargjald fylgdarmanns konu sem ferðast til að fæða barn, skv. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, nema 2. mgr. 3. gr. eigi við. Greiðsluhluti miðast við samanlagðan kostnað sjúkratryggðs og fylgdarmanns.
    Ýmis sérákvæði má jafnframt finna í 4. gr. reglugerðarinnar, m.a. varðandi rétt foreldra eða nánasta aðstandanda í ákveðnum tilvikum þegar sjúkratryggður er yngri en 18 ára, um rétt sjúkratryggðra sem þurfa á blóðskilunarmeðferð að halda og fleira.
    Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er í stöðugri skoðun og einnig endurgreiðslureglur ferðakostnaðar sem koma fram í reglugerð nr. 1140/2019 um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innan lands.

     3.      Hvernig er fólki sem býr utan höfuðborgarsvæðisins tryggt aðgengi að þjónustu sérfræðilækna í heimabyggð? Átt er við þjónustu sem unnt er að veita á heilsugæslustöð án flókins tækjabúnaðar, svo sem eftirlit háls-, nef-, og eyrnalækna, barnalækna o.fl. Hvernig er niðurgreiðslu sérfræðiþjónustu háttað fyrir einstaklinga á landsbyggðinni?
    Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, ber heilbrigðisumdæmum að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu á svæðinu, þar á meðal sérfræðiþjónustu. Samkvæmt sömu lögum er heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur heimilt að gera samninga um ákveðna þætti heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisstofnunum heilbrigðisumdæma ber samkvæmt reglugerð nr. 1111/2020 að leggja mat á þörf íbúa heilbrigðisumdæmisins fyrir heilbrigðisþjónustu og leggja fram áætlun um hvernig þeim þörfum skuli mætt. Hlutverk Landspítala skv. 23. gr. reglugerðarinnar er að veita nauðsynlega sérfræðiþjónustu, m.a. samkvæmt samningum við heilbrigðisstofnanir heilbrigðisumdæma.
    Heilbrigðisstofnanir skulu m.a. nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu og öfluga sjúkraflutninga til að tryggja aðgengi landsmanna að þjónustunni samkvæmt heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Í stefnu ríkisstjórnarinnar er eitt af markmiðunum að bæta aðgengi allra landsmanna að sérfræðiþjónustu í samráði við heilbrigðisstofnanir í öllum umdæmum.
    Þjónusta sérgreinalækna í heilbrigðisumdæmum hefur lengi verið viðfangsefni sem víða um land hefur verið erfitt að veita með fullnægjandi hætti svo hægt sé að tryggja bætt aðgengi með þeim leiðum sem til staðar eru í okkar heilbrigðiskerfi. Í dag er þjónusta sérgreinalækna á heilbrigðisstofnunum að meginhluta veitt með fernu móti og því er ljóst að fyrirkomulagið er nokkuð flókið og margbrotið:
     1.      Sérgreinalæknir er launamaður heilbrigðisstofnunar í gegnum ráðningarsamband.
     2.      Heilbrigðisstofnun gerir verktakasamning við einstaka sérgreinalækna.
     3.      Heilbrigðisstofnun gerir samning við sérgreinasjúkrahús um þjónustu.
     4.      Stofulæknir á rammasamningi við SÍ kemur á heilbrigðisstofnun og færir tímabundið starfsstöð sína og nýtir til þess aðstöðu og mannauð stofnunarinnar. Stundum er gerður þríhliða samningur, en oftast fela svona samningar í sér viðbótarumbun eða afslátt af einhverju tagi.
    Starfshópur frá 2017 á vegum ráðuneytisins vann úttekt á því hvaða þjónustu væri æskilegt að veita á heilbrigðisstofnunum landsins. Samkvæmt þeirri niðurstöðu var talið nauðsynlegt að bjóða upp á átta sérgreinar í öllum heilbrigðisumdæmum, þ.e. augnlækningar, kvensjúkdómalækningar, öldrunarlækningar, barnalækningar, geðlækningar, hjartalækningar, háls-, nef- og eyrnalækningar (HNE) og innkirtlalækningar.
    Mikilvægt er að heilbrigðisumdæmi hafi svigrúm til að skipuleggja framkvæmd sérfræðiþjónustu á hverju svæði í samræmi við mismunandi þarfir heilbrigðisumdæma fyrir þjónustuna og taki m.a. mið af íbúafjölda, íbúasamsetningu og þörfum íbúa. Þörfin getur verið breytileg frá einum tíma til annars og mætti m.a. líta til lýðheilsuvísa í því sambandi. Því liggur fyrir sú skylda heilbrigðisstofnana að þær móti sér stefnu um þá göngudeildarþjónustu sem veita skuli innan þeirra umdæmis. Í þeirri stefnu þarf að tryggja samþættingu og samfellu þjónustunnar milli þjónustuveitenda og þjónustustiga og skilgreina hvaða þjónustu skuli sinnt á heilsugæslu og hvaða þjónustu skuli sinnt á öðru þjónustustigi með aðkomu sérfræðilækna á göngudeild. Efling göngudeildarþjónustu innan stofnana er mikilvægur þáttur í heilbrigðisþjónustu og það útheimtir að viðunandi stöðugildi sérfræðilækna í sérgreinum fyrir flóknari göngudeildarþjónustu séu tryggð. Teymisvinna innan sjúkrahúsa er einnig liður í að tryggja samfellu í þjónustunni.
    Nýr samningur Sjúkratrygginga Íslands við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna til næstu fimm ára tekur að fullu gildi 1. september nk. Samningurinn felur í sér mikinn ávinning fyrir alla landsmenn og tryggir jafnt og aukið aðgengi að þjónustu sérfræðilækna óháð efnahag. Samningnum er jafnframt ætlað að styðja við framþróun í þjónustu sérfræðilækna með sérstakri áherslu á nýsköpun, stafræna þróun og fjarheilbrigðisþjónustu. Skv. 31. gr. laga um heilbrigðisþjónustu er opinberum heilbrigðisstofnunum heimilt að ganga til samninga við aðrar heilbrigðisstofnanir um þá heilbrigðisþjónustu sem þeim ber að veita samkvæmt lögum. Slíkt hefur verið gert en samningar um sérgreinalæknaþjónustu milli sérgreinasjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana hafa almennt reynst vel í þeim greinum þar sem slíkt hefur verið reynt síðustu ár og hefur ráðherra hvatt heilbrigðisstofnanir til að koma á slíkum samningum þar sem slíku verður við komið.
    Sjúkratryggðir á landsbyggðinni fá sömu greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu en jafnframt er þeim veitt greiðsluþátttaka í ferðakostnaði eftir því sem við á líkt og rakið er í svari við 2. tölul. fyrirspurnar. Lækkun greiðsluþátttöku sjúkratryggðra er afgerandi þáttur í því að jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og sporna við heilsufarslegum ójöfnuði af félagslegum og fjárhagslegum ástæðum.
    Starfshópur ráðherra um leiðir til að jafna aðgang að ýmiss konar sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu skilaði tillögum til ráðherra í júlí s.l. Tillögur hópsins snúa einkum að því hvernig nýta megi heimildir í lögum um Menntasjóð námsmanna til að beita tímabundnum ívilnunum við endurgreiðslu námslána í þeim tilgangi að styrkja mönnun sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum. Verkefni starfshóps ráðherra var að leggja til útfærslu á því hvernig beita megi heimildum um ívilnanir í þessu skyni og hvaða forsendur skuli liggja til grundvallar. Unnið er úr tillögum starfshópsins.

1     www.thjonustukort.is/?z=6.92&lat=65.01071395&lng=-18.98145901
2    Nordregio Report 2020:16 ISBN 978-91-8001-004-7 ISSN 1403-2503 DOI: doi.org/10.6027/ R2020:16.1403-2503