Ferill 708. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2239 — 708. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um jöfnun orkukostnaðar.
1. Hvaða aðgerðir hafa stjórnvöld ráðist í til að jafna flutnings- og dreifikostnað raforku frá árinu 2017?
Flutningskostnaður raforku er um það bil sá sami um allt land. Kostnaður við dreifingu raforku er hins vegar hærri í dreifbýli en í þéttbýli, sem endurspeglast í því að notendur RARIK og OV í dreifbýli (þar sem Orkustofnun hefur heimilað sérstakar dreifbýlisgjaldskrár) greiða hærra verð en notendur í þéttbýli fyrir dreifingu raforku. Stjórnvöld hafa brugðist við því með niðurgreiðslum í dreifbýli til að jafna muninn á gjaldskrám í dreifbýli og þéttbýli. Frá árinu 2017 hafa framlög stjórnvalda til jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku hækkað úr 901 m.kr. í 2.321 m.kr. árið 2023, sbr. töflu 1. Þessi hækkun hefur verið fjármögnuð með hækkun jöfnunargjalds, sem leggst á alla raforku sem fer um dreifikerfið, og með hækkun á beinu framlagi stjórnvalda til málaflokksins á fjárlögum.
Tafla 1. Framlög á fjárlögum (m.kr.) til jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku 2017–2023.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 |
| 901,3 | 1.011,6 | 999,6 | 1.015,0 | 1.810,8 | 2.080,8 | 2.321,3 |
2. Hvernig hefur flutnings- og dreifikostnaður raforku þétt- og dreifbýlis þróast frá árinu 2017?
Orkustofnun heldur utan um raforkuverð og gefur árlega út yfirlit miðað við 1. september. Viðmiðunartímabilið í svarinu er því september 2017 til september 2022. Á þessu tímabili hefur flutningskostnaður raforku hækkað um tæplega 13%. Dreifikostnaður raforku í þéttbýli hefur hækkað að meðaltali um 17,8% og dreifikostnaður raforku í dreifbýli hefur hækkað að meðaltali um 21,7%, eins og sjá má í töflu 2. Ef framlagi stjórnvalda til jöfnunar er bætt við til lækkunar í dreifbýli er hækkunin í dreifbýli að meðaltali um rúmlega 3%. Á sama tíma, frá september 2017 til september 2022, hefur vísitala neysluverðs hækkað um 25%.
Tafla 2. Þróun dreifikostnaðar raforku í þéttbýli og dreifbýli 2017–2022.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | Breyting 2017–2022 | |
| RARIK þéttbýli | 5,12 | 5,27 | 5,37 | 5,50 | 5,66 | 6,01 | 17,4% |
| Orkubú Vestfjarða þéttbýli | 5,79 | 5,79 | 6,20 | 6,36 | 6,72 | 7,06 | 21,9% |
| Veitur | 5,85 | 5,57 | 5,53 | 5,64 | 5,95 | 6,1 | 4,3% |
| HS Veitur | 5,44 | 5,68 | 5,68 | 5,75 | 6,32 | 6,52 | 19,9% |
| Norðurorka | 5,00 | 5,53 | 5,66 | 5,76 | 5,98 | 6,03 | 20,6% |
| Meðalverð í þéttbýli | 5,39 | 5,49 | 5,59 | 5,80 | 6,13 | 6,34 | 17,8% |
| RARIK dreifbýli | 9,90 | 10,51 | 10,78 | 11,05 | 11,00 | 11,64 | 17,6% |
| Orkubú Vestfjarða dreifbýli | 10,41 | 10,41 | 11,14 | 11,42 | 11,88 | 13,07 | 25,6% |
| Meðalverð í dreifbýli | 10,16 | 10,46 | 10,96 | 11,24 | 11,44 | 12,36 | 21,7% |
| Meðalverð RARIK í dreifbýli með framlagi stjórnvalda til jöfnunar | 7,93 | 8,71 | 8,76 | 8,97 | 7,42 | 7,85 | -1,01% |
| Meðalverð OV í dreifbýli með framlagi stjórnvalda til jöfnunar | 8,09 | 8,19 | 8,95 | 9,00 | 7,90 | 8,69 | 7,42% |
| Meðalverð í dreifbýli með framlagi stjórnvalda til jöfnunar | 8,01 | 8,45 | 8,855 | 8,985 | 7,66 | 8,27 | 3,25% |
| Vísitala neysluverðs | 444,6 | 456,8 | 470,5 | 487 | 508,2 | 555,6 | 25,0% |
3. Hvaða aðgerðir hyggst ráðherra ráðast í til að jafna flutnings- og dreifikostnað enn frekar, sbr. stefnumótandi byggðaáætlun 2023–2036?
Í stefnumótandi byggðaáætlun 2023–2036 er sett fram það markmið að orkukostnaður í dreifbýli og þéttbýli verði jafnaður, bæði hvað varðar dreifingu á raforku og húshitunarkostnað.
Eins og áður hefur komið fram er flutningskostnaður raforku nánast sá sami um allt land, en dreifikostnaður raforku í dreifbýli er hins vegar hærri en í þéttbýli, sem skýrist af miklum fjárfestingum í dreifbýli, m.a. vegna lengra dreifikerfis, lagningar eldri loftlína í jörð, orkuskipta í samgöngum og aukinnar raforkunotkunar í dreifbýli því tengt. Á sama tíma eru almennt færri notendur í dreifbýli til að standa undir þeim fjárfestingum í gegnum dreifbýlisgjaldskrár RARIK og Orkubús Vestfjarða sem kallar á meiri hækkanir þar en í þéttbýli.
Þrátt fyrir mikla hækkun á framlagi stjórnvalda til jöfnunar síðastliðin ár (úr 901 m.kr. 2017 í 2.321 m.kr. 2023) hefur ekki náðst að tryggja fulla jöfnun. Til að ná fullri jöfnun þarf að auka framlög til málaflokksins og til að ná fullri jöfnun á þessu ári þarf t.d. samkvæmt útreikningum Orkustofnunar tæplega 3.000 m.kr. Tillögur um hækkun jöfnunargjaldsins náðu ekki fram að ganga við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2023, en áfram verður unnið að því að auka jöfnun dreifikostnaðar raforku.
4. Hyggst ráðherra styðja sérstaklega við orkuskipti í raforkunotkun svo að öll heimili og fyrirtæki í landinu verði knúin með rafmagni frá endurnýjanlegum orkugjöfum?
Í dag eru 99,98% heimila og fyrirtækja knúin með rafmagni frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Aðeins íbúar utan samveitna, sem ekki eru tengdir raforkukerfinu, þ.e. í Grímsey, Flatey og á Grímsstöðum á Fjöllum, eru enn háðir olíunotkun til raforkuframleiðslu. Orkustofnun vinnur nú að áætlunum um orkuskipti á þessum stöðum, þar sem lagðar verða til leiðir til raforkuframleiðslu með umhverfisvænum og endurnýjanlegum orkugjöfum (t.d. með litlum vindmyllum, sólarsellum, varmadælum og nútímalegum viðarofnum sem tengja má beint við ofnakerfi). Stutt verður við þær áætlanir og gangi þær eftir verður hægt að útrýma olíu úr raforkukerfinu. Þar með verða öll heimili og fyrirtæki í landinu knúin með rafmagni frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Olía er enn notuð sem varaafl til raforkuframleiðslu og skoða þarf leiðir til að breyta því. Unnið er að styrkingu flutnings- og dreifikerfis sem mun auka afhendingaröryggi og draga úr þörf á varaafli. Auk þess má nefna að í nýlegri skýrslu starfshóps um eflingu samfélagsins á Vestfjörðum kemur fram að svokallaðar fjarvarmaveitur, sem gegna mikilvægu hlutverki við húshitun á Vestfjörðum, búi við skerðanlega raforku og þurfi að lúta því að vera kyntar með dísilolíu þegar ekki er næga raforku að fá með hefðbundnum hætti. Fram kemur að í fyrra nam olíunotkun fjarvarmaveitna um 2,1 milljón lítra sem svarar til eldsneytisáfyllingar á 40 þúsund bensín- eða dísilbifreiðar. Til samanburðar nam olíunotkun fjarvarmaveitna um 210.000 lítrum árið 2021. Verkefni næstu ára er að koma í veg fyrir notkun dísilolíu í fjarvarmaveitum með aukinni orkuöflun á Vestfjörðum en með því mætti draga úr losun um sem nemur 5.712 tonnum CO2-ígilda miðað við framangreinda notkun.
5. Hvaða aðgerðir hafa stjórnvöld ráðist í til að jafna kostnað vegna húshitunar frá árinu 2017?
Stjórnvöld hafa um árabil niðurgreitt kostnað við hitun íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma og frá árinu 2016 hefur flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verið niðurgreidd að fullu. Á þessu ári verja stjórnvöld tæplega 2,4 milljörðum kr. í niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, sbr. töflu 3.
Tafla 3. Framlög á fjárlögum (m.kr.) til niðurgreiðslna húshitunar 2017–2023.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 |
| 1.974,6 | 2.276,5 | 2.256,6 | 2.500,6 | 2.279,9 | 2.373,8 | 2.373,8 |
Styrkjakerfið vegna kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði, sem lækkað geta húshitunarkostnað, var einfaldað og bætt árið 2022 til að hvetja til frekari notkunar á orkusparandi tækjabúnaði á rafhituðum svæðum. Árin 2017–2021 var að meðaltali 35 m.kr. á ári varið í þessa styrki, árið 2022 var heildarupphæð styrkja 52 m.kr. og áætlað er að árið 2023 verði 80 m.kr. varið í styrki til kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði á rafhituðum svæðum, sbr. töflu 4.
Tafla 4. Styrkir (m.kr.) vegna kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði 2017–2023.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023* |
| 48 | 22 | 17 | 64 | 25 | 52 | 80 |
6. Hvernig hefur kostnaður vegna húshitunar þróast í þétt- og dreifbýli frá árinu 2017?
Kostnaður notenda í dreifbýli og þéttbýli sem hita íbúðarhúsnæði sitt með rafmagni og fá niðurgreiddan húshitunarkostnað frá stjórnvöldum hefur lækkað um 3% frá september 2017 til september 2022, aðallega vegna aukinnar samkeppni á raforkumarkaði og hækkunar á framlagi ríkisins.
Meðalverð vegna húshitunar í þéttbýli hjá þeim sem hita húsnæði sitt með rafmagni og fá ekki niðurgreiðslur húshitunar hefur hækkað að meðaltali um 17,8% frá árinu 2017.
Meðalverð vegna húshitunar í dreifbýli hjá þeim sem hita húsnæði sitt með rafmagni og fá ekki niðurgreiðslur húshitunar hefur hækkað um 21,6% frá árinu 2017.
Húshitunarkostnaður á landinu er mismunandi milli svæða og í skýrslu Byggðastofnunar um orkukostnað heimila 2022 er farið yfir þann mun. Lægsti húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign (einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 m3) er á Flúðum, um 70 þús. kr. og þar næst í Brautarholti á Skeiðum og á Seltjarnarnesi, um 75 þús. kr., eins og sjá má á mynd 1. Hæsti húshitunarkostnaðurinn er í Grímsey, þar sem er olíukynding, um 231 þús. kr. Þar fyrir utan er húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign hæstur á stöðum þar sem notast er við kynta hitaveitu, þ.e. á Ísafirði, í Bolungarvík, á Seyðisfirði, Patreksfirði, Suðureyri og Flateyri, eða um 209 þús. kr. Dæmi eru þó um að húshitunarkostnaður sé álíka hár þar sem hefðbundnar hitaveitur eru, t.d. á Höfn og í Nesjahverfi en þar er ný hitaveita (RARIK), á Grenivík (Norðurorka) og Kópaskeri (Hitaveita Öxarfjarðarhéraðs). Á stöðum sem þurfa að nota beina rafhitun er lægsti húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareignina nú um 177 þús. kr. Húshitunarkostnaður þar sem kynt er með rafmagni getur lækkað umtalsvert með notkun varmadæla og í skýrslu Byggðastofnunar er áætlað að með varmadælu geti kostnaðurinn verið um 88 þús. kr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 1. Húshitun, lægsta mögulega verð. Heimild: Skýrsla Byggðastofnunar um orkukostnað heimila 2022.
7. Hvaða aðgerðir hyggst ráðherra ráðast í til að jafna kostnað vegna húshitunar enn frekar, sbr. stefnumótandi byggðaáætlun 2023–2036?
Í stefnumótandi byggðaáætlun 2023–2036 er sett fram það markmið að orkukostnaður í dreifbýli og þéttbýli verði jafnaður, bæði hvað varðar dreifingu á raforku og húshitunarkostnað.
Frá árinu 2016 hefur flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verið niðurgreidd að fullu, eins og fyrr hefur komið fram. Þá geta íbúar á rafhituðum svæðum fengið styrk frá stjórnvöldum til kaupa á varmadælum og lækkað þannig hitunarkostnað sinn enn frekar. Styrkjakerfið vegna kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði var einfaldað og bætt árið 2022 til að hvetja til frekari notkunar á orkusparandi tækjabúnaði á rafhituðum svæðum og er gert ráð fyrir mikilli aukningu styrkja árið 2023, sbr. svar við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
8. Hyggst ráðherra styðja sérstaklega við orkuskipti í húshitun svo að öll heimili og fyrirtæki í landinu verði hituð með orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum?
Í dag eru 99,98% heimila og fyrirtækja hituð með orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Aðeins íbúar í Grímsey, Flatey og á Grímsstöðum á Fjöllum eru enn háðir olíunotkun til húshitunar.
Orkustofnun vinnur nú að áætlunum um orkuskipti á þessum stöðum, líkt og varðandi raforkuframleiðslu, þar sem lagðar verða til leiðir til húshitunar með umhverfisvænum og endurnýjanlegum orkugjöfum. Stutt verður við þær áætlanir og gangi þær eftir verður hægt að hætta að nota olíu til húshitunar. Þar með verða öll heimili og fyrirtæki í landinu hituð með orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
Rafkyntar hitaveitur (fjarvarmaveitur), sem nýta skerðanlega raforku frá Landsvirkjun, nota olíu sem varaafl og var notkun olíu talsverð hjá þeim árið 2022 vegna mikilla skerðinga á afhendingu raforku það ár. Hjá Orkubúi Vestfjarða notuðu rafkyntar hitaveitur t.d. 2,1 milljón lítra af olíu árið 2022, samanborið við 210 þúsund lítra árið 2021 líkt og fram kemur í skýrslu starfshóps um eflingu samfélagsins á Vestfjörðum sem kom út í júní sl. Skerðing getur átt sér stað af tveimur meginástæðum; annars vegar ef tímabundinn aflskortur er í kerfi Landsvirkjunar vegna bilana, viðhalds eða mikils álags og hins vegar ef vatnafar er óhagstætt og ekki er nægt vatn í miðlunum, þannig að einungis er hægt að afhenda forgangsorku sem er óskerðanleg. Skoða þarf hvernig draga megi úr notkun olíu hjá þessum veitum, en til að mynda gæti átak í leit og nýtingu jarðhita, sem er fram undan 2023–2025, haft í för með sér verulegar breytingar ef nýtanlegur jarðhiti finnst á þessum svæðum.