Ferill 1054. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2288  —  1054. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um samstarf eða sameiningu framhaldsskóla.


     1.      Hver var aðdragandi og tímalína þess þegar ráðuneytið fól skólameisturum eftirfarandi skóla að hefja viðræður um aukið samstarf eða sameiningu skólanna:
                  a.      Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri,
                  b.      Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund,
                  c.      Flensborgarskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans,
                  d.      Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs?

    Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hefur verið unnið að því í ráðuneytinu að efla iðn- og verknám. Í febrúar 2023 var lokið við framkvæmdaáætlun um stækkun flestra starfsmenntaskóla í landinu til að mæta aukinni aðsókn í starfsnám. Þá var ljóst að samhliða þyrfti aðgerðaáætlun til að mæta bæði orðinni og fyrirsjáanlegri vannýtingu húsnæðis bóknámsskóla.
    Þá hefur verið unnið að mörgum verkefnum til að efla framhaldsskólastigið í samræmi við menntastefnu til ársins 2030, önnur markmið ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Mörg þessara verkefna krefjast fjármagns. Í tengslum við undirbúning fjármálaáætlunar 2024–2028 var ákveðið að fara í markvissa vinnu við að finna leiðir til þess að nýta betur það fjármagn sem fer til framhaldsskólanna með það að markmiði að veita svigrúm til frekari eflingar framhaldsskóla í samræmi við framangreint.
    Ráðherra skipaði því í apríl sl. stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Hlutverk hópsins er að meta framtíðarskipulag framhaldsskólakerfisins til ársins 2030, með hliðsjón af samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum í samráði við hagaðila. Stýrihópnum er falið að móta og leggja fram tillögur að aðgerðum sem snúa að framtíðarskipulagi framhaldsskólakerfisins og mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum framhaldsskólanna. Þá skal stýrihópurinn meta rekstrarforsendur framhaldsskólanna með hliðsjón af fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2024–2028 og gera tillögur að úrbótum þar sem við á.

     2.      Hverjar eru ástæður þess að framangreindir skólar urðu fyrir valinu?
    Stýrihópurinn skipti vinnu sinni í þrjá áfanga. Rýni hópsins á framangreindum skólum felur í sér fyrsta áfanga vinnu hans, en þeir voru valdir á eftirfarandi forsendum: Skólarnir eru í landfræðilegri nálægð, hafa möguleg samlegðaráhrif og breytinga er þörf á húsnæði þeirra. Allir eru þeir framúrskarandi á ákveðnum sviðum og hafa jákvæða og farsæla reynslu af breytingastjórnun.

     3.      Hvers vegna var skólameisturum annarra skóla ekki falið að hefja sambærilegar viðræður?
    Í næstu tveimur áföngum verkefnisins er gert ráð fyrir að fram fari rýni á auknu samstarfi eða sameiningum fleiri skóla. Í öðrum áfanga er gert ráð fyrir samtali um fleiri skóla á höfuðborgarsvæðinu og í þriðja áfanga verður fjallað um framhaldsskóla á landsbyggðinni.

     4.      Hefur það verið til skoðunar að leggja Menntaskólann við Sund niður?
    Úttekt á húsnæði Menntaskólans við Sund haustið 2022 leiddi í ljós að húsnæðið er illa farið af leka og myglu. Ljóst er að ekki er unnt að reka skólann í núverandi mynd í húsnæði hans. Áætlaður kostnaður við viðgerðir er verulegur á sama tíma og mikið er af vannýttu húsnæði í bóknámsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Ýmsum möguleikum hefur verið velt upp í tengslum við þessa stöðu en sá valkostur sem nú er í skoðun er fýsileiki sameiningar Menntaskólans við Sund við Kvennaskólann í Reykjavík.

     5.      Stendur til að kanna möguleika á frekari sameiningu skóla á framhaldsskólastigi?
    Eins og fram kom í svari við 3. tölul. fyrirspurnar verður það viðfangsefni næstu áfanga stýrihópsins í nánu samráði við skólastjórnendur, starfsfólk, nemendur og aðra hagaðila viðkomandi skóla að ræða mögulegt aukið samstarf og/eða mögulega sameiningu.