Ferill 169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 169  —  169. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um tekjutengingu sekta fyrir umferðarlagabrot.


Flm.: Guðmundur Ingi Kristinsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa starfshóp sem taki til endurskoðunar þau ákvæði umferðarlaga og tilheyrandi reglugerða sem kveða á um sektir með það að markmiði að sektarfjárhæðir verði að jafnaði tekjutengdar. Starfshópurinn taki jafnframt til skoðunar hvaða brot geti fallið þar undir. Hópurinn skili skýrslu með tillögum til ráðherra eigi síðar en 30. september 2024. Ráðherra leggi skýrsluna fyrir Alþingi eigi síðar en 30. nóvember 2024 og leggi jafnframt til nauðsynlegar lagabreytingar.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður lögð fram á 152. og 153. löggjafarþingi (73. mál) og er nú lögð fram óbreytt að öðru leyti en því að tímafrestir hafa verið framlengdir um eitt ár.
    Um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim gildir nú reglugerð nr. 1240/2019. Sektarfjárhæðir samkvæmt reglugerðinni eru misháar eftir tegundum og alvarleika brota, allt frá tugþúsundum upp í hundruð þúsunda króna fyrir algeng brot á borð við hraðakstur. Jafnframt er í 98. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, kveðið á um fullkomna samlagningu sekta ef um er að ræða brot gegn fleiri en einu ákvæði laganna sem varða sektum.
    Hugmyndir um tekjutengingu sekta eru ekki nýjar af nálinni hér á landi. Í frumvarpi til nýrra umferðarlaga sem var lagt fram fjórum sinnum árin 2010–2013, síðast á 141. löggjafarþingi (179. mál), en náði ekki fram að ganga, var lagt til að sektarfjárhæðir yrðu að vissu marki tekjutengdar. Þannig yrði heimilt að veita sakborningi allt að 25% afslátt af upphaflegri sektarfjárhæð ef hann hefur lægri tekjur en hálf önnur lágmarkslaun samkvæmt skattframtali síðasta almanaksárs. Í greinargerð með frumvarpinu var m.a. litið til 1. mgr. 51. gr. almennra hegningarlaga þar sem segir að þegar fjárhæð sektar er ákveðin skuli eftir því sem við á höfð hliðsjón af tekjum og eignum sakbornings, afkomu, framfærsluskyldu, öðrum atriðum er orka á greiðslugetu hans og þeim fjárhagslega ávinningi eða sparnaði sem leiddi af brotinu eða stefnt var að með því. Ákvæði þetta gildi í öllum tilvikum þegar fjársektir eru ákveðnar hvort sem er samkvæmt hegningarlögum eða sérrefsilögum, enda komi ekki annað fram eða verði leitt af ákvæðum sérrefsilaga. Þá sé ljóst að í gildandi umferðarlögum og reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á lögunum sé ekki að finna ákvæði sem beinlínis geri ráð fyrir að horft sé til sambærilegra sjónarmiða, heldur taki sektir mið af broti hverju sinni og séu að verulegu leyti staðlaðar. Einnig var vísað til fordæma fyrir tekjutengingu sekta vegna umferðarlagabrota í nágrannalöndum.
    Fordæmi fyrir tekjutengingu sekta vegna umferðarlagabrota fyrirfinnast m.a. í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi, en misjafnt er hversu langt er gengið í þeim efnum. Til að mynda geta einstaklingar í Danmörku sem sýna fram á sérstaklega lágar tekjur fengið sektir lækkaðar niður að tilteknu lágmarki. Í Finnlandi miðast sektir aftur á móti alfarið við tekjur greiðanda og er jafnframt litið til fjölskyldustærðar. Það fyrirkomulag á rætur að rekja til ársins 1921. Auk þess má nefna að fordæmi eru fyrir tengingu hámarksfjárhæða sekta sem eru lagðar á fyrirtæki við ársveltu þeirra, svo sem í samkeppnislögum og lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
    Flutningsmenn tillögu þessarar telja að fyrirkomulag staðlaðra sekta hér á landi þjóni ekki tilgangi sínum gagnvart hátekjufólki í sama mæli og það geri gagnvart fólki með meðaltekjur eða lægri tekjur. Til að mynda geta sektir fyrir hraðakstur sem ekki varðar öðrum viðurlögum numið allt að 130.000 kr., en það jafngildir meira en 40% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum þeirra sem lökust hafa kjörin, svo sem öryrkja sem hafa engar aðrar tekjur en lágmarksgreiðslur almannatrygginga. Að sama skapi er ljóst að sú upphæð hefði hverfandi áhrif á einstakling sem hefur margar milljónir í tekjur á mánuði. Með tilliti til sjónarmiða um varnaðaráhrif refsinga er því lagt til að komið verði á tekjutengingu sekta vegna algengustu tegunda umferðarlagabrota sem einstaklingar fremja án tengsla við atvinnu sína.
    Komið getur til greina að sektir verði í hverju tilfelli ákveðnar þannig að hlutfall af grunnfjárhæð sektar samsvari hlutfalli tekna sakbornings samkvæmt skattframtali síðasta almanaksárs af meðaltekjum það ár. Þó getur einnig komið til greina að kveða á um tiltekið lágmark sektarfjárhæðar sem taki mið af tekjum þeirra hópa sem búa við lökust kjör, svo sem þeirra sem hafa engar aðrar tekjur en grunnbætur almannatrygginga. Jafnframt verði heimilt að meta árslaun sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi og ætla má að annar mælikvarði sé réttari á líklega framfærslugetu sakbornings en þær tekjur sem koma fram á skattframtali síðasta árs, líkt og gildir um árslaunaviðmið skaðabótalaga. Enn fremur kemur til greina að undanskilja frá tekjutengingu sektir vegna brota sem tengjast starfi sakbornings, svo sem umferðarlagabrot í starfi atvinnubílstjóra.