Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 196 — 194. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um brottfall úr háskólum og aðgerðir vegna kórónuveirufaraldurs.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hversu mikið brottfall var úr námi á háskólastigi á árunum 2010–2023, sundurliðað eftir árum og menntastofnun?
2. Hversu margir luku einungis hluta af tilætluðum einingum á árunum 2010–2023, sundurliðað eftir árum og menntastofnun?
3. Hversu margir sóttu um sérstök úrræði hjá Menntasjóði námsmanna vegna veikinda sem tengdust kórónuveirufaraldri, sundurliðað eftir árum?
4. Hvaða sértæku aðgerðir í tengslum við kórónuveirufaraldur var farið í til þess að koma til móts við nemendur á háskólastigi?
Skriflegt svar óskast.