Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 248 — 245. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um fjárveitingar til háskóla.
Frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.
1. Telur ráðherra að niðurstöður í skýrslu starfshóps þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Daggar Alfreðsdóttur, um fjárveitingar til háskóla sem kynnt var í júlí 2021 vera góðan grunn til áframhaldandi vinnu við sókn í þágu háskóla og samfélags?
2. Hvernig nýtist aukin fjárveiting til háskóla, þ.e. fimm milljarðar króna milli áranna 2023–2024, í nýju reiknilíkani og sérstaklega með tilliti til landsbyggðar og fjarnáms?
3. Hvernig kemur nýja reiknilíkanið út í samanburði við önnur ríki á Norðurlöndum, sérstaklega varðandi aukna áherslu á rannsóknastarfsemi og hagnýtingu rannsókna, aukin samfélagstengsl og bætta námsframvindu nemenda?
Skriflegt svar óskast.