Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 303 — 299. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um Framkvæmdasjóð aldraðra.
Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
1. Hversu mikið fé hefur runnið til Framkvæmdasjóðs aldraðra árlega sl. 10 ár?
2. Hversu mikið af því fé var á hverju ári veitt til:
a. uppbyggingar,
b. rekstrar,
c. annars, og þá hvers?
3. Hvaða uppbygging og framkvæmdir eru fyrirhugaðar við hjúkrunarheimili og hversu margir einstaklingar til viðbótar munu fá pláss vegna þeirra? Listi yfir framkvæmdirnar óskast og upplýsingar um hvenær gert er ráð fyrir að þeim verði lokið.
Skriflegt svar óskast.