Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 315 — 311. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um vændi.
Frá Brynhildi Björnsdóttur.
1. Hvernig er fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks um einkenni vændis háttað?
2. Hyggst ráðherra koma á skimun fyrir einkennum vændis sem yrði sambærileg skimun fyrir einkennum heimilisofbeldis innan heilsugæslunnar?
3. Hvaða þjónusta stendur til boða einstaklingum sem eru eða hafa verið í vændi að því er varðar sálfræðiþjónustu, virkniúrræði, ráðgjöf og fleira?
Skriflegt svar óskast.