Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 361 — 350. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um eignarskerðingarmörk vaxtabóta.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
1. Hversu mörg heimili verða fyrir aukinni skerðingu vaxtabóta vegna áhrifa af hækkun fasteignamats og raunrýrnun eignarskerðingarmarka árið 2024?
2. Hver verða áhrif af aukinni skerðingu vaxtabóta fyrir ríkissjóð?
3. Hversu mörg heimili missa allan rétt til vaxtabóta?
4. Hver yrði kostnaður af 33% hækkun eignarskerðingarmarka vaxtabóta fyrir ríkissjóð og hvernig myndi sá aukni stuðningur dreifast eftir tekjutíundum og aldurshópum?
Skriflegt svar óskast.