Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 376  —  365. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um myndefni gervigreindar.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Telur ráðherra að núverandi reglugerðarheimildir séu fullnægjandi til að takast á við hættuna sem því fylgir þegar gervigreind útbýr myndefni sem sýnir persónu einstaklinga í aðstæðum eða aðgerðum sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum?
     2.      Ef svo er, hyggst ráðherra nýta slíkar heimildir til að tryggja m.a. heilindi kosninga og persónu einstaklinga sem kunna að verða fyrir slíkri myndbirtingu?
     3.      Ef ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir því að slíkar heimildir verði veittar?


Skriflegt svar óskast.