Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 386  —  375. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um fund aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnavopnum.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


    Mun ríkisstjórnin senda áheyrnarfulltrúa á fund aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnavopnum, sem haldinn verður í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna 27. nóvember – 1. desember 2023, líkt og ríkisstjórnir Noregs og Þýskalands hafa boðað að þær muni gera?


Munnlegt svar óskast.