Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 393  —  213. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um söfnun og endurvinnslu veiðarfæra.


     1.      Hvað líður staðfestingu ráðherra á nýjum samningi sem meiri hluti stjórnar Úrvinnslusjóðs gerði við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um meðhöndlun veiðarfæraúrgangs síðari hluta árs 2021?
    Þann 29. október 2021 sendi Úrvinnslusjóður (ÚVS) ráðherra til staðfestingar samning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og veiðarfæragerðir um ráðstafanir til að tryggja úrvinnslu úrgangs veiðarfæra sem innihalda plast, í samræmi við 3. mgr. 8. gr. laga nr. 162/2002, um úrvinnslugjald. Í kjölfar þess að samningurinn barst ráðherra til staðfestingar hefur ráðuneytið fundað með aðilum sem málið varða með það fyrir augum að afla frekari upplýsinga, þ.e. með Umhverfisstofnun, SFS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ráðuneytið taldi það mikilvægt sökum þess að samningurinn var ekki samþykktur af öllum stjórnarmönnum í stjórn Úrvinnslusjóðs og þess að Umhverfisstofnun gerði tilteknar athugasemdir við samninginn í umsögnum sínum. Þá hafa ráðuneytið og ráðherra fengið kynningu frá SFS um samninginn og þær breytingar sem í honum felast frá núgildandi kerfi.
    Málið er í farvegi í ráðuneytinu.

     2.      Hefur verið metinn árangur af fyrri samningi frá 2005 um sama efni?
    Samkvæmt upplýsingum frá ÚVS er árangur núgildandi samnings metinn árlega og hefur verið síðan frá árinu 2007. Meðfylgjandi er tafla sem sýnir endurvinnsluhlutfall hvers árs auk samanburðar við markmiðin samkvæmt samningnum frá 2005.

Tafla 1. Endurvinnsluhlutfall veiðarfæraúrgangs úr gerviefnum 2007–2022.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Úrvinnslusjóður áætlar að hér á landi verði í heildina um 2.800 tonn af veiðarfærum að úrgangi á ári hverju. Hluti af þessu magni eru veiðarfæri úr gerviefnum (plasti), sem falla undir gildandi samning um veiðarfæri frá 2005 en hluti þeirra er úr öðrum efniviði, svo sem úr málmum og gúmmíi. Áætlað hefur verið að af áðurnefndum 2.800 tonnum séu um 1.100 tonn af veiðarfærum úr gerviefnum sem mögulegt sé að endurvinna. Í samningnum frá árinu 2005 var miðað við að úrgangur sem fellur til árlega vegna veiðarfæra úr gerviefnum sé 1.100 tonn og var það lagt til grundvallar sem viðmiðunarmagn þegar kom að því að meta árangur. Mat á árangri er hlutfall af endurunnum veiðarfærum úr gerviefnum miðað við framangreint mat á árlegu magni veiðarfæraúrgangs úr gerviefnum. Samkvæmt Úrvinnslusjóði var magn veiðarfæra úr gerviefnum sem fór til endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar á árunum 2007–2022 á bilinu 474–1.184 tonn árlega (Tafla 1). Markmið samningsins er að 60% endurvinnanlegra veiðarfæra úr gerviefnum fari í endurvinnslu, sem svarar til um 660 tonna á ári. Þetta markmið hefur því yfirleitt náðst utan 2020 þegar hlutfallið var 48% og 2021 þegar það var 59%. Lágt endurnýtingarhlutfall árið 2020 má að mati sjóðsins rekja til áhrifa af heimsfaraldri, þar sem flokkaður veiðarfæraúrgangur beið útflutnings. Heildarendurvinnsla á veiðarfæraúrgangi sem fellur undir eldri samning var 1.184 tonn árið 2022 sem svarar þá til 108% endurvinnsluhlutfalls miðað við viðmiðunarmagn samningsins frá 2005.
    Samkvæmt upplýsingum sem Umhverfisstofnun safnar frá urðunarstöðum sem reknir eru í landinu hafa síðastliðin ár verið urðuð um 520–1.200 tonn af veiðarfæraúrgangi á ári. Til viðbótar þá er talsverður hluti veiðarfæraúrgangs gerður úr málmum og getur ratað í endurvinnslufarvegi sem slíkur, en söfnun málma til endurvinnslu fer fram víða um land.

     3.      Telji ráðuneytið að samningurinn uppfylli ekki ákvæði laga um úrvinnslugjald, líkt og fram kemur í umsögn Umhverfisstofnunar, hver verða næstu skref til að uppfæra ákvæði hans í takt við gildandi lög?
    Ráðuneytið vísar til svars við spurningu nr. 1 en málið er í farvegi innan ráðuneytisins.

     4.      Kannast ráðuneytið við að samningsaðilar séu farnir að starfa samkvæmt hinum nýja samningi, þrátt fyrir að hann hafi ekki hlotið staðfestingu ráðherra? Ef svo er, hver er afstaða ráðuneytisins til þess?
    Úrvinnslusjóður starfar eftir gildandi samningi frá árinu 2005 og metur árangur eftir ákvæðum þess samnings. Samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum endurskipulögðu SFS og veiðarfæragerðir verklag sitt vegna veiðarfæraúrgangs og skipulag söfnunar í lok árs 2021, þar sem endurskipulagningin tók mið af hinum nýja, samþykkta, en óstaðfesta, samningi. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins er komin reynsla á nýja fyrirkomulagið fyrir heilt ár, þ.e. árið 2022, sbr. töflu 1.
    Ráðuneytið gerir ekki athugasemdir við að samningsaðilar ákveði að starfa samkvæmt nýjum samningi þrátt fyrir að staðfesting ráðherra liggi ekki fyrir enda felist í því að gengið sé lengra en fyrri samningur frá árinu 2005 kveður á um í átt að því að ná markmiðum laga um úrvinnslugjald og tölulegum markmiðum fyrir söfnun á veiðarfæraúrgangi til endurvinnslu.

     5.      Hvert er safnað magn veiðarfæraúrgangs sem flutt er úr landi árlega frá 2005, samkvæmt bókhaldi Umhverfisstofnunar, og hvert fer hann í meðhöndlun?
    Umhverfisstofnun safnar árlega upplýsingum um tegund, magn, ráðstöfun og uppruna úrgangs frá þeim rekstraraðilum í landinu sem eru með starfsleyfi til að meðhöndla úrgang. Rekstraraðilar skila þessum upplýsingum í Gagnagátt Umhverfisstofnunar fyrir 1. maí fyrir undangengið almanaksár en upplýsingum hefur verið safnað með þeirri aðferðarfræði síðan 2015. Upplýsingar um magn veiðarfæra sem enda í urðun koma frá rekstraraðilum urðunarstaða en upplýsingar um veiðarfæraúrgang úr gerviefnum sem sendur er utan til endurvinnslu hafa seinustu ár borist Umhverfisstofnun beint frá Úrvinnslusjóði og byggjast þá á upplýsingum frá SFS og þá geta þau einnig borist eftir atvikum frá öðrum rekstraraðilum. Fram að þeim tíma var oft ekki fullt samræmi í upplýsingum frá Úrvinnslusjóði og Umhverfisstofnun. Eins og kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um Úrvinnslusjóð frá því í ágúst 2022 þarf að samræma upplýsingar milli þeirra aðila sem fara með úrgangsmál og sannreyna eins og kostur er. Í úttektinni er einnig dregið fram að SFS heldur ekki sérstaklega utan um veiðarfæraúrgang sem ekki er endurvinnsluhæfur, fellur ekki undir samninginn eða kemur af öðrum ástæðum ekki inn til móttöku á vegum SFS og í tölum Umhverfisstofnunar er ekki gerður greinarmunur á veiðarfæraúrgangi sem fellur innan eða utan veiðarfærasamnings, þ.e. hvort um sé að ræða veiðarfæri úr gerviefnum eða ekki. Veiðarfæraúrgangur geti farið til ráðstöfunar með öðrum rekstrarúrgangi og því gæti magnið hugsanlega verið meira og úrgangur getur einnig innihaldið ýmiss konar aukahluti sem getur skekkt magntölur.
    Ráðuneytið vill benda á það varðandi tölur fyrir árið 2016 að það ár voru a.m.k. 78 tonn móttekin hjá öðrum endurvinnsluaðilum samkvæmt upplýsingum úr ársskýrslu Úrvinnslusjóðs sem útskýrir mismun á tölum fyrir það ár. Hvað varðar árið 2021 var heildarendurvinnsla samkvæmt upplýsingum UST 728 tonn en sú tala inniheldur endurvinnslu á gúmmíi hjá Granuband sem er ekki inni í tölum Úrvinnslusjóðs sem útskýrir mun á tölum ársins 2021.
    Samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar er magn og ráðstöfun veiðarfæraúrgangs árin 2008–2021 eftirfarandi:

Tafla 2: Magn og ráðstöfun veiðarfæraúrgangs 2008–2021.

Ár Endurvinnsla (tonn) Urðun (tonn) Brennsla án orkunýtingar (tonn)
2008 473 609 18
2009 126 972 2
2010 1.024 424 4
2011 684 736 25
2012 683 857 6
2013 967 598 1
2014 756 522 0
2015 1.008 655 0
2016 1.168 1.045 0
2017 1.022 641 0
2018 975 935 0
2019 758 1.000 0
2020 526 1.157 0
2021 728 754 2

    Fyrir tímabilið 2005–2007 getur Umhverfisstofnun ekki tengt söfnun við ráðstöfun, þ.e. hvort úrgangurinn fór í urðun, brennslu eða endurvinnslu og ná tölurnar því aftur til ársins 2008.
    Samkvæmt upplýsingum frá Úrvinnslusjóði var veiðarfæraúrgangur úr gerviefnum endurunninn bæði hér innan lands og erlendis fyrstu ár núgildandi veiðarfærasamnings. Úrgangurinn var endurunninn að Læk í Ölfusi og síðar hjá PM Endurvinnslu í Gufunesi en hvorugt þeirra fyrirtækja er starfandi í dag. Auk þess var hluti veiðarfæraúrgangs úr gerviefnum sendur fyrstu árin til Polyvektris í Litáen. Samkvæmt Úrvinnslusjóði hefur veiðarfæraúrgangur úr gerviefnum verið sendur til Polyvektris í Litáen, Nofir í Noregi, Plastix í Danmörku, Polynord í Noregi og Aquafill í Slóveníu. Á árunum 2019–2022 var úrgangurinn sendur til endurvinnslu á vegum SFS og veiðarfæragerða í Danmörku, Noregi og Litáen, sbr. eftirfarandi töflu. Svokallaðir „rockhopperar“, sem eru úr gúmmíi, voru sendir til endurvinnslu hjá Granuband í Hollandi.

Tafla 3: Ráðstöfun veiðarfæraúrgangs.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     6.      Hvernig er söfnunar- og endurvinnsluhlutfall veiðarfæraúrgangs reiknað og hvaða gögn liggja að baki þeim útreikningum?
    Eins og kemur fram í svari við spurningu nr. 2 tekur gagnasafn Úrvinnslusjóðs um endurvinnsluhlutfall veiðarfæraúrgangs nú einungis til veiðarfæra úr gerviefnum. Úrvinnslusjóður tekur á móti upplýsingum frá SFS um magn veiðarfæraúrgangs sem þeirra kerfi tekur til og kemur þeim upplýsingum áfram til Umhverfisstofnunar. Úrvinnslusjóður fær jafnframt staðfestingar frá ráðstöfunaraðilum sem taka við veiðarfærunum til endurvinnslu. Í samningnum frá 2005 eru ekki ákvæði um söfnunarhlutfall eða töluleg markmið tengd söfnunarhlutfalli. Þar af leiðandi hefur Úrvinnslusjóður ekki upplýsingar þar að lútandi. Úrvinnslusjóður heldur utan um tölfræði og markmið er varða magn veiðarfæraúrgangs úr gerviefnum sem fer til endurvinnslu.
    Í samningnum frá 2005 er miðað við að úrgangur sem fellur til árlega vegna veiðarfæra úr gerviefnum sé 1.100 tonn. Í samningnum er jafnframt sett markmið um að endurvinnsla veiðarfæra úr gerviefnum sé 60% af þessu magni. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hefur Umhverfisstofnun ekki tekið saman gögn um söfnunar- og endurvinnsluhlutfall veiðarfæraúrgangs.
    Eftir fulla gildistöku laga nr. 103/2021, um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 1. janúar 2023, ber Úrvinnslusjóður ábyrgð á að ná tölulegum markmiðum um söfnun, undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu og förgun einnota plastvara og veiðarfæra sem innihalda plast. Í samræmi við þetta mun sjóðurinn nú safna upplýsingum um magn þessara vara sem sett eru á markað, magn þess úrgangs sem safnað er og ráðstöfun hans og skila til Umhverfisstofnunar fyrir 1. apríl ár hvert.
    Í nýjum, samþykktum en óstaðfestum veiðarfærasamningi frá árinu 2021 eru breyttar forsendur varðandi magn veiðarfæraúrgangs sem inniheldur plast sem fellur til árlega. Í honum er miðað við söfnunarhlutfall veiðarfæra sem innihalda plast sem safnað er á því almanaksári, sem hlutfall af meðalþyngd veiðarfæra sem innihalda plast sem framleiðendur og innflytjendur setja á markað á því almanaksári og næstliðnum þremur almanaksárum, að frádreginni þeirri þyngd veiðarfæra sem innihalda plast sem flutt eru úr landi áður en þau eru seld til notenda. Miðað skal við að ná 80% söfnunarhlutfalli af heildarþyngd innfluttra veiðarfæra sem innihalda plast.