Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 443 — 422. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um blóðmerahald.
Frá Ingu Sæland.
1. Hvaða áhrif mun það hafa á framkvæmd blóðmerahalds þegar starfsemin verður færð undir gildissvið reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni nr. 460/2017, í staðinn fyrir nú úrelta reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum nr. 900/2022?
2. Stendur til að herða kröfur um blóðmerahald eða jafnvel banna það með hliðsjón af því að nú þegar eru framleiddar staðkvæmdarvörur sem hafa sömu notkunareiginleika og þau lyf sem framleidd eru úr hormóni fylfullra mera, enda samrýmist það skilyrði 10. gr. reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni nr. 460/2017?
Skriflegt svar óskast.