Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 447  —  426. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um könnun á kostum og göllum þess að taka upp annan gjaldmiðil.

Frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.


     1.      Er ríkisstjórnin reiðubúin að leggja tillögu Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins, lið er hann fjallar um á Facebook-síðu sinni 22. september 2023 og gangast fyrir því að óháðir erlendir aðilar kanni kosti þess og galla að taka upp annan gjaldmiðil á Íslandi?
     2.      Myndi ríkisstjórnin gera það að skilyrði að Samtök atvinnulífsins féllust á slíka tillögu?


Skriflegt svar óskast.