Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 473  —  299. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um Framkvæmdasjóð aldraðra.


     1.      Hversu mikið fé hefur runnið til Framkvæmdasjóðs aldraðra árlega sl. 10 ár?
     2.      Hversu mikið af því fé var á hverju ári veitt til:
                  a.      uppbyggingar,
                  b.      rekstrar,
                  c.      annars, og þá hvers?

    Í eftirfarandi töflu má sjá heildarfjármagn sem hefur verið ráðstafað til Framkvæmdasjóðs aldraðra í fjárlögum og fjáraukalögum síðustu 10 ár og skiptingu fjármagns milli rekstrar og fjárfestingar. Á þessu tímabili hafa verið gerðar breytingar á hagrænni skiptingu í fjárlögum. Leigugreiðslur til tíu sveitarfélaga á stofnkostnaði við byggingu hjúkrunarheimila (leiguleið) teljast vera fjármagnstilfærslur og hafa verið flokkaðar þannig frá árinu 2016 enda um breytt form á fjárfestingu að ræða. Á árunum 2012–2015 voru þær flokkaðar sem rekstrarframlög. Framlag ríkissjóðs vegna leiguleiðarinnar er fært sem fjárfesting í töflunni allt tímabilið til þess að fá betri samanburð á milli ára. Með gildistöku laga um opinber fjármál var gerð breyting á framsetningu framlaga til viðhaldsverkefna í fjárlögum sem nýtt eru til að greiða hluta af húsnæðisgjaldi á öldrunarstofnunum. Frá árinu 2017 er ekki lengur gert ráð fyrir því að slík framlög séu tilgreind á sérstökum viðhaldsviðfangsefnum. Í tilfelli Framkvæmdasjóðs aldraðra voru þau flokkuð sem fjármagnstilfærslur til ársins 2016 en frá árinu 2017 eru þau hluti af almennum rekstrarframlögum. Leiðrétt hefur verið fyrir þessu í töflunni og eru framlög til viðhaldsverkefna flokkuð sem rekstrarframlög allt tímabilið (upphæðir eru í m.kr.).

Ár Fjárlög og fjáraukalög Þar af fjárfestingar Þar af rekstur
2014 1.764 869 895
2015 1.825 930 895
2016 1.903 1.008 895
2017 2.038 1.143 895
2018 2.360 1.465 895
2019 2.833 1.938 895
2020 2.833 1.938 895
2021 3.226 2.331 895
2022 3.226 2.331 895
2023 3.040 2.115 925
Árin 2014–2015 eru framlög ríkissjóðs vegna leiguleiðarinnar leiðrétt og fært sem fjárfesting líkt og er gert árin 2016–2023. Þá eru framlög til viðhaldsverkefna leiðrétt og flokkuð sem rekstrarframlög árin 2014–2016 eins og er gert árin 2017–2023.

     3.      Hvaða uppbygging og framkvæmdir eru fyrirhugaðar við hjúkrunarheimili og hversu margir einstaklingar til viðbótar munu fá pláss vegna þeirra? Listi yfir framkvæmdirnar óskast og upplýsingar um hvenær gert er ráð fyrir að þeim verði lokið.

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2026:
Hjúkrunarheimili Fjöldi rýma Þar af ný rými Verkstaða Áætluð verklok
Stykkishólmur 18 0 Verkframkvæmd að ljúka 2023
Höfn 30 6 Verkframkvæmd 2024
Kópavogur, Boðaþing* 64 64 Verkframkvæmd 2025
Húsavík 60 6 Verkframkvæmd 2026
Hveragerði, Ás 22 4 Í áætlunargerð 2025
Patreksfjörður 11 0 Í áætlunargerð 2027
Reykjanesbær, Nesvellir 2 80 50 Verkframkvæmd 2025
Ísafjörður, Eyri 10 10 Í áætlunargerð,
deiliskipulagi lokið
2025
Akureyri, Lögmannshlíð 80 80 Í áætlunargerð, forvals- og útboðsgögn í undirbúningi, deiliskipulagi lokið 2027
Mosfellsbær, Hamrar 66 66 Í áætlunargerð, forvals- og útboðsgögn í undirbúningi 2026
Reykjavík, Mosavegur 140 140 Í áætlunargerð,
deiliskipulagi lokið
2028
Samtals 581 426
* 47% fjármagnað af Framkvæmdasjóði aldraðra.

          Þegar hefur verið auglýst á almennum markaði eftir leiguhúsnæði fyrir hjúkrunarheimili og er Framkvæmdasýsla – Ríkiseignir byrjuð að vinna að fjölgun rýma, sbr. eftirfarandi töflu:
Hjúkrunarheimili skv. breyttu fyrirkomulagi Fjöldi rýma Þar af ný rými Verkstaða Áætluð verklok
Sóltún (stækkun) 60–70 60–70 Samningsgerð að ljúka, í hönnun 2025
Hjúkrunarheimili skv. auglýsingu 100–120 100–120 Í skoðun 2025–2026
Hjúkrunarheimili skv. auglýsingu 100–120 100–120 Í skoðun 2025–2026
Samtals 260–310 260–310