Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 477  —  328. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um menntaskólaáfanga fyrir grunnskólabörn.


     1.      Eru í gildi verklagsreglur um það þegar börn sækja áfanga sem kenndir eru í menntaskólum sem hluta af grunnskólanámi þeirra?
    Þegar börn sækja áfanga sem kenndir eru í framhaldsskólum sem hluta af grunnskólanámi gilda lög um grunnskóla, nr. 91/2008, og eftir atvikum lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008, en jafnframt er að finna nánari útfærslu og viðmið til slíks náms í aðalnámskrá grunnskóla frá 2011. Þá er gert ráð fyrir að fyrir liggi samkomulag milli hlutaðeigandi grunnskóla og framhaldsskóla þar sem nánar er gerð grein fyrir framkvæmd og fyrirkomulagi.
    Lög um grunnskóla kveða á um rétt nemenda til að fá kennslu við hæfi og að þess skuli sérstaklega gætt að allir nemendur fái jöfn tækifæri til náms og eigi þess kost að velja sér viðfangsefni og nálgun í eigin námi. Í því samhengi eiga nemendum að standa til boða valgreinar við hæfi í grunnskóla á öðrum sviðum ef nemendur hafa lokið einstökum námsgreinum.
    Samkvæmt 1. og 2. málsl. 4. mgr. 26. gr. laga um grunnskóla eiga grunnskólanemendur rétt á að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi á meðan þeir eru í grunnskóla enda hafi þeir sýnt fullnægjandi færni. Skólastjóri í grunnskóla veitir nemanda heimild til slíks náms utan skólans samkvæmt viðmiðum sem sett skulu í aðalnámskrá. Í 1. mgr. 31. gr. laganna er kveðið á um að nám grunnskólanemenda í framhaldsskólaáföngum skuli veitt nemendum að kostnaðarlausu enda sé námið skilgreint sem hluti náms í grunnskóla.
    Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um grunnskóla er gert ráð fyrir því að námið geti í eðli sínu verið þrenns konar. Í fyrsta lagi nám sem skipulagt er af grunnskólum samkvæmt samkomulagi við framhaldsskóla, þ.e. námið er hluti af grunnskólanámi samkvæmt skólanámskrá. Slíkt skipulagt nám skal vera nemendum að kostnaðarlausu. Í öðru lagi þegar nemendur taka einstaka námsáfanga í framhaldsskóla sem viðbót við grunnskólanám. Þá greiðir ríkið fyrir kennslukostnað en nemandi fyrir námsgögn og innritunarkostnað, enda er námið ekki metið sem hluti af skipulögðu námi við grunnskóla. Í þriðja lagi þegar nemandi óskar eftir því að fá nám í einstökum framhaldsskólaáföngum metið sem valgrein en að öðru leyti er námið ekki skipulagt í samstarfi grunnskóla og framhaldsskóla.
    Enn fremur kemur m.a. fram í greinargerðinni í umfjöllun um 26. gr. laganna að heimild skólastjóra til þess að veita nemanda leyfi til þess að stunda nám utan skóla verði að byggjast á þeim sjónarmiðum að nemandi hafi lokið námi í viðkomandi grein þar sem það á við eða sýnt fullnægjandi færni. Gert sé ráð fyrir því að í aðalnámskrá sé að finna viðmið sem lögð verði til grundvallar ákvörðun skólastjóra. Þá er áréttað að réttur nemanda til þess að stunda nám samkvæmt greininni taki einvörðungu til náms sem talist getur hluti af grunnskólanámi hans.
    Í greinargerðinni er einnig fjallað um að gert sé ráð fyrir að samkomulag liggi fyrir milli viðkomandi grunnskóla og framhaldsskóla um framkvæmdina. Gera þurfi samning milli ríkis og sveitarfélaga um framkvæmdina þegar nemendur stunda samtímis nám í grunn- og framhaldsskóla, m.a. um ábyrgð grunnskólans á námi nemandans og ákvæði um kostnaðarskiptingu. Með hliðsjón af lögskýringargögnum og 2. mgr. 31. gr. laganna þarf slíkt samkomulag milli hlutaðeigandi aðila að liggja fyrir til þess að grunnskóli geti boðið upp á slíkt nám.
    Í aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 er að finna umfjöllun um val og valgreinar á grunnskólastigi. Þar kemur fram að val í námi í grunnskóla eigi að miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, verknám og list- og tækninám. Í þessu skyni gefst nemendum kostur á að dýpka þekkingu sína á þeim námssviðum eða innan lögboðinna námsgreina. Einnig eiga nemendur að geta valið um viðfangsefni sem einkum miða að því að víkka sjóndeildarhring þeirra, stuðla að aukinni lífsfyllingu eða dýpka þekkingu, leikni og hæfni þeirra á tilteknum sviðum í samræmi við áhuga þeirra. Í aðalnámskránni kemur einnig fram að samkvæmt ósk foreldra er heimilt að meta sem nám tímabundna þátttöku nemenda í atvinnulífi og reglubundna þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi enda falli það að markmiðum skólastarfs sem og skipulagt nám sem stundað er utan grunnskóla til valgreina, t.d. nám við framhaldsskóla, listaskóla og málaskóla.
    Í aðalnámskránni er einnig fjallað um tengsl grunn- og framhaldsskóla. Þar kemur fram að grunnskólanemendum er heimilt að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi að loknu grunnskólanámi í viðkomandi greinum. Grunnskólanemendum er einnig heimilt að stunda slíkt nám samhliða grunnskólanámi enda hafi þeir sýnt til þess fullnægjandi hæfni. Í þeim tilvikum þarf traust samstarf að ríkja milli grunn- og framhaldsskóla. Námið er á ábyrgð grunnskólans og vitnisburður um það því birtur á vitnisburðarblaði nemandans við lok grunnskóla. Nám á framhaldsskólastigi er skilgreint á hæfniþrep. Framhaldsskóli sem í hlut á staðfestir að námið uppfylli þau skilyrði sem skólinn setur og fer um mat á náminu samkvæmt því. Þar á að koma fram, stundi grunnskólanemandi nám í framhaldsskóla sem skilgreint er sem hluti náms í grunnskóla, að um kostnað vegna kennslu á framhaldsskólastigi fari eftir ákvæðum laga um grunn- og framhaldsskóla. Um nánari framkvæmd og fyrirkomulag skal samið milli hlutaðeigandi grunn- og framhaldsskóla.

     2.      Hyggst ráðherra grípa til ráðstafana til að tryggja að börn sem sækja menntaskólaáfanga í grunnskóla beri ekki kostnaðinn af því?
    Með hliðsjón af framangreindu eiga ákvæði laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og framkvæmd þeirra að tryggja að börn sem stunda nám í einstökum framhaldsskólaáföngum beri ekki kostnað af náminu, enda sé námið skilgreint sem hluti náms í grunnskóla, og því er litið svo á að ekki þurfi að grípa til sérstakra ráðstafana.