Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 479  —  280. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um heimild til færslu bókhalds í öðrum gjaldmiðlum en krónu.


     1.      Hversu mörg einkafyrirtæki og einkafélög höfðu árið 2023 heimild hjá ársreikningaskrá skv. 7. gr. laga um ársreikninga til að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli og semja og birta ársreikninga í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskrar krónu?
    Miðað við 20. október 2023 hafa 236 fyrirtæki heimild frá ársreikningaskrá, sbr. ákvæði 1. mgr. 8. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt.

     2.      Hversu mörg opinber fyrirtæki og félög höfðu árið 2023 heimild hjá ársreikningaskrá skv. 7. gr. laga um ársreikninga til að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli og semja og birta ársreikninga í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskrar krónu?
    Miðað við 20. október 2023 hafa þrjú fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkissjóðs heimild skv. 3. mgr. 7. gr. laga um ársreikninga til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt.

     3.      Hver var skipting þessara félaga og fyrirtækja milli atvinnugreina samkvæmt atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands?
    Félög veita ekki upplýsingar um atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands við skil á ársreikningum til ársreikningaskrár. Slíkar upplýsingar liggja því ekki fyrir.

     4.      Hvaða gjaldmiðlar voru notaðir í stað íslenskrar krónu?
    Samkvæmt upplýsingum frá ársreikningaskrá nota íslensk fyrirtæki sex gjaldmiðla við færslu bókhalds og samningu ársreiknings. Þeir eru eftirfarandi:
     1.      122 fyrirtæki nota evru,
     2.      100 fyrirtæki nota bandaríkjadal,
     3.      6 fyrirtæki nota breskt pund,
     4.      4 fyrirtæki nota sænska krónu,
     5.      3 fyrirtæki nota norska krónu og
     6.      1 fyrirtæki notar danska krónu.

     5.      Hversu mörg fyrirtæki sóttu um og hversu mörg fengu heimild til að færa bókhaldsbækur og semja og birta ársreikninga í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskrar krónu?
    Ekki er ljóst af fyrirspurninni um hvaða tímabil er að ræða en eitt fyrirtæki hefur fengið heimild til að færa bókhaldsbækur og semja og birta ársreikninga í erlendum gjaldmiðli vegna reikningsársins sem hefst 1. janúar 2024 og 15 fyrirtæki fengu slíka heimild vegna reikningsársins sem hófst 1. janúar 2023.

     6.      Á hvaða grundvelli höfðu þessi fyrirtæki og félög óskað eftir því að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli?
    Til þess að fyrirtæki geti fengið heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt þarf það að uppfylla skilyrði sem fram koma í 3. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 8. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, um starfrækslugjaldmiðil. Fyrirtæki sem ekki uppfyllir skilyrði 7. og 8. gr. laga nr. 3/2006 getur ekki fengið slíka heimild. Viðkomandi fyrirtæki og félög sækja um á þeim grundvelli að þau uppfylli skilyrði laganna.