Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 488  —  221. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði.


     1.      Hvernig skiptast úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði eftir atvinnugreinum árlega sl. 10 ár?
    Með því að notast við skilgreiningar Tækniþróunarsjóðs skiptast úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði eftir atvinnugreinum á árunum 2013–2023 á eftirfarandi hátt:

Flokkur Alls 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023*
Almenn matvælatækni 58 0 0 5 6 6 5 3 7 13 7 6
Almenn verslun og þjónusta (þ.m.t. fjármálaþjónusta og öryggisþjónusta) 155 8 9 8 11 8 12 15 22 24 25 13
Bygginga- og mannvirkjagerð (þ.m.t. viðhald) 27 1 1 2 3 3 2 1 7 2 3 2
Ferðaþjónusta 37 3 3 1 5 5 3 1 6 3 5 2
Fjarskiptaþjónusta og samgöngur 67 4 2 4 8 4 7 6 8 12 8 4
Fræðslu- og menntatengd þjónusta 75 5 4 6 7 6 5 5 5 10 17 5
Hagnýting auðlinda lífríkis á landi (landbúnaður, skógrækt) 48 5 4 1 4 6 1 3 5 5 8 6
Hagnýting auðlinda lífríkis sjávar og ferskvatns 122 11 13 15 13 10 12 6 18 9 14 1
Heilbrigðis- og velferðarþjónusta 65 2 2 5 5 7 5 5 7 5 15 7
Heilbrigðistækni og lækningatæki 139 9 13 13 14 11 13 13 21 17 12 3
Menning, hönnun og afþreying 132 8 8 14 14 17 11 5 14 18 15 8
Orkunotkun og hagnýting orkuauðlinda 113 6 3 9 17 16 7 8 7 14 16 10
Umhverfis- og skipulagsmál (þ.m.t. vatnsveitur og úrgangur) 43 0 0 0 1 4 1 7 10 11 6 3
Vinnsla lífrænna og ólífrænna efna (önnur en efnaframleiðsla) 29 2 2 0 2 4 3 2 5 4 4 1
Öryggisþjónusta 6 2 2 1 1 0 0 0 0 0 0 0
Annað 10 0 0 10 0 0 0 0 0 0 0
Á ekki við 91 0 0 9 7 12 13 21 17 3 8 1
Alls 1217 66 66 103 118 119 100 101 159 150 163 72
* Ein úthlutun það sem af er ári.

     2.      Hver var hlutur verkefna sem tengjast ferðaþjónustu á þessu tímabili?
    Eins og fram kemur í töflunni hér að framan fengu 37 verkefni á sviði ferðaþjónustu styrk á tímabilinu.

     3.      Hvernig skiptast úthlutanir úr sjóðnum eftir landshlutum árlega sl. 10 ár?
    Úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði á árunum 2013–2023 má sjá í eftirfarandi töflu:

Alls 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023**
Austurland 8 1 2 1 1 1 0 0 2 0 1 0
Höfuðborgarsvæðið* 964 41 45 73 94 99 81 86 120 126 135 64
Vesturland 8 0 1 0 3 0 1 0 1 1 1 0
Vestfirðir 15 2 2 1 2 1 0 1 2 2 2 0
Suðurland 21 1 0 3 0 2 4 3 2 5 0 1
Reykjanes 32 1 2 6 3 1 4 1 7 2 4 1
Norðvesturland 12 2 0 1 0 1 0 0 1 2 4 0
Norðausturland 29 0 3 1 1 2 3 1 5 6 5 2
Á ekki við 128 18 11 18 14 11 7 9 19 6 11 4
Alls 1217 66 66 104 118 118 100 101 159 150 163 72
*Miðað við SSH .
**Ein úthlutun það sem af er ári.