Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 493 — 454. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stöðu félagslegra fyrirtækja á Íslandi.
Flm.: Elva Dögg Sigurðardóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Sigmar Guðmundsson, Gísli Rafn Ólafsson, Björn Leví Gunnarsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Halldóra Mogensen.
Alþingi ályktar að fela menningar- og viðskiptaráðherra að framkvæma greiningu á stöðu félagslegra fyrirtækja á Íslandi. Í henni skal mat lagt á umgjörð og stuðningskerfi slíkra fyrirtækja hérlendis í samanburði við önnur norræn ríki.
Ráðherra skal kynna niðurstöður greiningarinnar fyrir Alþingi og leggja fram tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum til að félagsleg fyrirtæki á Íslandi njóti sama réttar og ívilnana og sambærileg fyrirtæki í öðrum norrænum ríkjum eigi síðar en 1. janúar 2025.
Greinargerð.
Undanfarin ár hefur borið meira á félagslegum fyrirtækjum (e. social enterprises) í Evrópu. Meginmarkmið slíkra fyrirtækja er að hafa jákvæð félagsleg áhrif og vinna í þágu samfélagsins, líkt og félögin sem nefnd voru að framan, en mögulega myndi slíkum fyrirtækjum henta betur að starfa undir öðrum rekstrarformerkjum. Ákveðnum hugmyndum um samfélagslega nýsköpun er hugsanlega hægt að finna sjálfbærari farveg í öðru rekstrarfyrirkomulagi. Félagsleg fyrirtæki geta verið samkeppnishæf á markaði og veitt þjónustu en á sama tíma unnið að samfélagslegum lausnum. Þau geta skapað verðmæti, veitt jaðarsettum hópum rödd og farið betur með almannafé ef regluverk uppfyllir þarfir þeirra með einföldum og skýrum hætti.
Enn sem komið er eru félagsleg fyrirtæki lítt þekkt á Íslandi en ef við viljum ekki verða eftirbátur nágrannaþjóða okkar er mikilvægt að stefna verði mótuð sem fyrst. Flutningsmenn tillögu þessarar telja heppilegt að litið verði til Norðurlanda þegar stefnumótun verður undirbúin. Þar hefur þekking á félagslegum fyrirtækjum og vitund um þau aukist undanfarin ár og stuðningur við samfélagslega frumkvöðla verið stóraukinn. Hægt er að sækja í fjölbreytt tengsla- og stuðningsnet þar. Þess má geta að í Svíþjóð og Danmörku er í boði nám á háskólastigi í tengslum við þessi fræði. 1 Fjölda fræðigreina og upplýsingarita má nálgast um þessi mál. Í Danmörku hafa einnig verið sett lög sem gera fyrirtækjum kleift að öðlast viðurkenningu sem félagsleg fyrirtæki. 2
Til að koma til móts við ört stækkandi samfélag og þær fjölbreyttu áskoranir sem fylgja er mikilvægt að auðvelda frekara frumkvæði almennings. Bjóða þarf fjölbreyttari leiðir til að efla samfélag okkar. Flutningsmenn leggja því til að menningar- og viðskiptaráðherra verði falið að kanna og kortleggja umgjörð og stuðningskerfi félagslegra fyrirtækja hérlendis og að leggja fram tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum til að tryggja að aðstaða slíkra fyrirtækja verði sem líkust því sem er í öðrum norrænum ríkjum.
1 Socialt entreprenörskap: www.su.se/sok-kurser-och-program/fe6607-1.445844
MSc in Social Entrepreneurship and Management: ruc.dk/en/master/social-entrepreneurship-and-management
2 Lov om registrerede socialøkonomiske virksomheder: www.retsinformation.dk/eli/lta/2014/711