Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 505 — 464. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um Loftbrú og þróun flugfargjalda í innanlandsflugi.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hversu margir hafa nýtt sér Loftbrú, niðurgreiðslu á innanlandsflugi fyrir íbúa á landsbyggðinni, frá því að til hennar var stofnað og hve oft hefur hver einstaklingur nýtt sér hana? Svar óskast sundurliðað eftir kyni og aldri.
2. Hvernig hefur þróun á upphæð niðurgreiðslu verið eftir hverri flugferð, áætlunarleiðum og mánuðum?
3. Telur ráðherra að merkja megi breytingar á flugfargjöldum í innanlandsflugi frá því að stofnað var til Loftbrúar?
4. Hvaða áhrif hefur Loftbrú haft á farþegafjölda í innanlandsflugi? Svar óskast sundurliðað eftir aldri, kyni og fjölskyldutekjum.
Skriflegt svar óskast.