Ferill 466. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 507  —  466. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um greiðslufyrirkomulag vegna búsetu á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


     1.      Telur ráðherra tilefni til að breyta fyrirkomulagi greiðsluþátttöku íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum, svo sem að afnema svokallað vasapeningakerfi en taka þess í stað upp sértækar greiðslur fyrir húsaleigu og annan kostnað sem fylgir heimilishaldi?
     2.      Hver var afraksturinn af vinnu starfshóps um breytt greiðslufyrirkomulag á hjúkrunarheimilum sem skipaður var vorið 2016 af Eygló Harðardóttur, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra?


Skriflegt svar óskast.