Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 518 — 245. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur um fjárveitingar til háskóla.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Telur ráðherra að niðurstöður í skýrslu starfshóps þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Daggar Alfreðsdóttur, um fjárveitingar til háskóla sem kynnt var í júlí 2021 vera góðan grunn til áframhaldandi vinnu við sókn í þágu háskóla og samfélags?
2. Hvernig nýtist aukin fjárveiting til háskóla, þ.e. fimm milljarðar króna milli áranna 2023–2024, í nýju reiknilíkani og sérstaklega með tilliti til landsbyggðar og fjarnáms?
3. Hvernig kemur nýja reiknilíkanið út í samanburði við önnur ríki á Norðurlöndum, sérstaklega varðandi aukna áherslu á rannsóknastarfsemi og hagnýtingu rannsókna, aukin samfélagstengsl og bætta námsframvindu nemenda?
Í verkefninu Árangurstengd fjármögnun háskóla er byggt á fyrri undirbúningsvinnu, einkum vinnu Ásdísar Jónsdóttur og Daða Más Kristóferssonar í Grænbók um fjárveitingar til háskóla frá 2019, sem hefur að geyma greinargott yfirlit yfir málaflokkinn, og skýrslu um Fjárveitingar til háskóla frá árinu 2021, með almennum tillögum að fjármögnun en er án útreikninga eða greininga og skilur allar helstu ákvarðanir eftir.
Auknar fjárveitingar til háskóla nýtast einkar vel, bæði við innleiðingu á Árangurstengdri fjármögnun háskóla og til að draga úr sveiflunum sem ella hefðu orðið vegna niðurfellingar á COVID-19 framlögum.
Í Árangurstengdri fjármögnun háskóla er sérstakur liður, Efling byggðar, sem er ætlaður háskólum sem halda úti staðnámi á landsbyggðinni, auk þess sem aukið framboð fjarnáms er eitt af áherslumálum ráðherra. Ekki er kunnugt um þá fimm milljarða króna sem tilgreindir eru í fyrirspurninni. Áætlað er að 38.129 millj. kr. fari til háskólastigsins árið 2024. Þar af eru 35.757 millj. kr. fyrir útreikning launa- og verðlagsbóta, sem felur í sér 529 millj. kr. aukningu frá fjárlögum 2023, sem námu 35.228 millj. kr. Tímabundin framlög vegna nemendafjölgunar í COVID-19 falla niður milli ára. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að framlög til háskólastigsins aukist að nýju um 3.500 millj. kr., þar af fara 2.500 millj. kr. í sókn við innleiðingu Árangurstengdrar fjármögnunar háskóla og áætlað að einum milljarði króna verði varið í Samstarf háskóla.
Árangurstengd fjármögnun háskóla er í takti við þá aðferðafræði sem þekkist á Norðurlöndunum, einkum í Finnlandi. Í Árangurstengdri fjármögnun háskóla er ný breyta, rannsóknarhluti, sem þekktist ekki áður. Sá þáttur er hins vegar ekki jafn stór og þekkist til dæmis í Finnlandi, sem endurspeglar að einhverju leyti þá staðreynd að íslenskir háskólar eru innbyrðis ólíkir að stærð og í áherslum. Samfélagslegt hlutverk háskóla er betur skilgreint en áður með hliðsjón af Árangurstengdri fjármögnun háskóla. Þar er hvati til hagnýtingar rannsókna. Með hækkun brautskráningarframlaga skapast hvati fyrir háskóla til að hlúa betur að nemendum, sem vonast er til að bæti námsframvindu.
Drög að nýjum reglum um fjárframlög til háskóla, ásamt greinargerð, voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 11. október 2023 og var samráðsfrestur til 12. nóvember 2023. Reglunum er ætlað að leysa af hólmi eldra reiknilíkan háskóla sem er grundvallað á reglum um fjárveitingar til háskóla nr. 646/1999 og árlegri uppfærslu reikniflokka kennslugreina í háskólum í fylgiriti fjárlaga. Gerð verður grein fyrir fjárveitingum til háskóla samkvæmt Árangurstengdri fjármögnun háskóla í fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2024.