Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 593  —  293. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um hraðamörk á vegum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur komið til skoðunar að nýta heimild í 4. mgr. 37. gr. umferðarlaga um aukinn hámarkshraða á ákveðnum vegköflum? Ef svo er, hvers vegna var ákveðið að nýta ekki þá heimild?

    Í 37. gr. umferðarlaga, 4. mgr., stendur: „Ákveða má hærri hraðamörk á vegum, þó eigi hærri en 110 km á klst. ef akstursstefnur eru aðgreindar og aðstæður að öðru leyti leyfa, enda mæli veigamikil sjónarmið um umferðaröryggi eigi gegn því. Á vegum með aðskildar akstursstefnur þar sem hámarkshraði hefur verið ákveðinn hærri en 90 km á klst. er umferð gangandi, hjólandi og léttra bifhjóla í flokki I ekki heimil, enda séu gangstéttir, göngustígar, hjólastígar eða aðrar leiðir til staðar.“
    Við ákvörðun á hámarkshraða og hvort verjanlegt sé að hækka hann umfram þær meginreglur sem kveðið er á um í umferðarlögum er litið til ýmissa þátta. Í fyrsta lagi hvort vegur og hönnun hans uppfylli nauðsynleg skilyrði til að hægt sé að hækka hámarkshraðann. Í öðru lagi hvort næsta umhverfi vegarins, þ.e. öryggissvæði, uppfylli sambærileg skilyrði. Í þriðja lagi hvort miðjusvæði milli akbrauta, miðdeilir, uppfylli skilyrðin. Í fjórða lagi þarf að huga að óvörðum vegfarendum.
    Eins og staðan er í dag uppfyllir enginn vegur á Íslandi skilyrði fyrir hámarkshraða hærri en 90 km/klst. Auk nægilegs hönnunarhraða eru skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til að hækka megi leyfilegan hámarkshraða á vegi eftirfarandi:
     1.      Akstursstefnur séu aðgreindar.
     2.      Vegamót séu mislæg.
     3.      Breidd öryggissvæðis meðfram vegi sé nægjanleg.
     4.      Miðjusvæði á milli akbrauta sé fullnægjandi.
     5.      Hjólandi vegfarendum hafi verið tryggð örugg leið.
    Reykjanesbrautin milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur er sá vegur sem kemst næst því að uppfylla skilyrðin en þó vantar nokkuð upp á, sbr. eftirfarandi:
          Öryggissvæði meðfram veginum uppfyllir ekki kröfur fyrir hærri hámarkshraða en 90 km/klst. og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða 100 km/klst. eða 110 km/klst. Í fyrra tilvikinu þyrfti að tryggja að lágmarki 15 metra breitt svæði án hvers kyns hindrana norðan og sunnan brautarinnar, en að lágmarki 18 metra breitt svæði í síðara tilvikinu, til að draga úr hættu á alvarlegum meiðslum við útafakstur.
          Miðjusvæðið milli akbrauta, svokallaður miðdeilir, uppfyllir ekki skilyrðin. Í miðjusvæðinu hefur verið unnið að uppsetningu vegriðs til að koma í veg fyrir að ökutæki geti komist yfir á þann helming vegarins sem ekið er á í gagnstæða átt. Í dag eru vegrið einungis öðrum megin, að jafnaði þeim megin sem vegkantur liggur hærra í landi.
          Auk þess er ekki göngu- og hjólastígur á milli Keflavíkur og Hafnarfjarðar.