Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 594  —  261. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um samráð starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga við hagaðila.


     1.      Við hvaða hagaðila á leigumarkaði hefur starfshópur um endurskoðun húsaleigulaga haft samráð og hvernig?
    Hinn 23. júní 2022 skipaði innviðaráðherra starfshóp um endurskoðun húsaleigulaga (hér eftir kallaður starfshópurinn). Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk starfshópsins að endurskoða húsaleigulög, nr. 36/1994, með síðari breytingum, með það að markmiði að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Í því skyni skyldi starfshópurinn m.a. horfa til tillagna í skýrslu átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði (hér eftir kallaður átakshópur stjórnvalda um húsnæðismál), dags. 19. janúar 2019, 1 sem áréttaðar voru í skýrslu starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði, dags. 19. maí 2022. 2
    Í því skyni að varpa ljósi á tækifæri til umbóta við endurskoðun húsaleigulaga sendi starfshópurinn bréf til 36 hagaðila á leigumarkaði og gaf þeim kost á að koma upplýsingum og ábendingum, sem ekki lægju þegar fyrir í áðurnefndum tveimur skýrslum, á framfæri við starfshópinn. Þetta voru Alma leigufélag, Arion banki, ASÍ, Bjarg, Blær, Bríet, Brynja, Búseti, Byggingafélag námsmanna, Félagsbústaðir, Félagsstofnun stúdenta, Festa, Geðhjálp, Heimstaden, Húseigendafélagið, Igloo (Leiguskjól), Ísland.is, Íslandsbanki, Keilir, Kvika banki, Landsbankinn, Neytendasamtökin, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök leigjenda á Íslandi, Sjóvá, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Samtök verslunar og þjónustu, Þjóðskrá Íslands, Þroskahjálp, TM, VÍS, Vörður og VR.
    Alls bárust starfshópnum fimm umsagnir; frá Félagsstofnun stúdenta, Heimstaden, Húseigendafélaginu, Neytendasamtökunum og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
    Einnig sendi starfshópurinn út spurningalista til ýmissa hagaðila og bauð þeim að koma á sinn fund til að gera nánar grein fyrir sjónarmiðum sínum og ábendingum. Spurningarnar voru m.a. byggðar á þeim tillögum sem settar voru fram í skýrslum átakshóps stjórnvalda um húsnæðismál frá 2019 og starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði frá 2022 og lutu fyrst og fremst að húsaleigulögunum. Þannig var lagt upp með að fá fram upplýsingar, sjónarmið og viðhorf hagaðila til þeirra atriða sem starfshópnum var ætlað að taka mið af í sínum störfum. Fulltrúar 14 hagaðila komu á fundi starfshópsins; frá Alþýðusambandi Íslands, Byggingafélagi námsmanna, Félagsstofnun stúdenta, Húseigendafélaginu, Neytendasamtökunum, Öryrkjabandalagi Íslands, Félagsbústöðum, Heimstaden, Landssamtökum íslenskra stúdenta, Leigufélagi aldraðra, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum leigjenda, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og VR.
    Starfshópurinn skilaði áfangaskýrslu til ráðherra 14. desember 2022 og var hún birt opinberlega á vef Stjórnarráðsins. Þar var m.a. gerð grein fyrir því samráði sem þegar hafði átt sér stað í vinnu starfshópsins, þeim ólíku sjónarmiðum sem þar höfðu komið fram og gerð grein fyrir framhaldi vinnu starfshópsins.
    Í tengslum við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 12. desember 2022, um stuðning stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í desember 2022, var ákveðið að starfshópurinn skyldi einnig vera skipaður fulltrúum heildarsamtaka á vinnumarkaði og tóku þeir sæti í honum í febrúar 2023.
    Starfshópnum var falið að skila tillögum sínum til ráðherra í formi frumvarps til laga um breytingu á húsaleigulögum og var frumvarpið samið í innviðaráðuneytinu á grundvelli tillagna starfshópsins. Þær tillögur voru birtar til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda frá 19. júlí 2023 til 21. ágúst 2023 í formi draga að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum. Þar gafst almenningi og hagaðilum tækifæri til þess að koma ábendingum á framfæri í opnu samráði. Alls bárust 17 umsagnir um málið í gegnum samráðsgáttina, þar á meðal frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

     2.      Hvernig hefur skipting hagaðila sem starfshópur um endurskoðun húsaleigulaga hefur haft samráð við verið milli fulltrúa ólíkra og öndverðra hagsmuna, svo sem leigusala og fjármálafyrirtækja annars vegar og leigjenda og neytenda hins vegar? Telur ráðherra þá skiptingu endurspegla jafnvægi milli þeirra mismunandi hópa sem um ræðir og ólíkra hagsmuna þeirra?
    Í störfum sínum leitaðist starfshópurinn við að hafa samband við fulltrúa sem flestra sem hagsmuna hafa að gæta af breytingum á húsaleigulögum. Um fjölbreyttan hóp var að ræða en líkt og fram hefur komið voru á meðal þeirra sem samráð var haft við í þessari vinnu fulltrúar leigjenda, leigusala og þá bæði einstaklinga og leigufélaga (hagnaðar- sem og óhagnaðardrifinna), fjármálafyrirtækja, eldra fólks, námsmanna, stéttarfélaga og fjölda annarra ólíkra hagaðila. Ljóst er að listinn er ekki tæmandi yfir alla þá sem kunna að hafa hagsmuni af breytingu húsaleigulaga enda var áframhaldandi samráð haft við hagaðila og almenning á síðari stigum við meðferð málsins.
    Í þessari vinnu, sem endranær, hefur samráðsgátt stjórnvalda því mikilvæga hlutverki að gegna að tryggja að öllum, bæði einstaklingum og hagaðilum, gefist tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri um tillögur að lagabreytingum og önnur mál sem þar er haft samráð um. Með því fyrirkomulagi er tryggt að allir hagsaðilar hafi jöfn tækifæri til að koma ábendingum sínum og áherslum á framfæri áður en endanleg útfærsla er ákveðin.

     3.      Telur ráðherra Hagsmunasamtök heimilanna vera hagaðila á leigumarkaði?
    Ráðherra telur Hagsmunasamtök heimilanna vera hagaðila á leigumarkaði.

     4.      Hvers vegna hefur starfshópur um endurskoðun húsaleigulaga ekki haft samráð við Hagsmunasamtök heimilanna?
    Samráðsgátt stjórnvalda er víðtækt samráðsferli sem tryggði að Hagsmunasamtök heimilanna fengu tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um tillögur starfshópsins sem varð einmitt til þess að samtökin veittu umsögn um málið. Tekið verður tillit til athugasemda allra þeirra sem samráð var haft við, þ.m.t. umsagnaraðila, við endanlega útfærslu frumvarpsins áður en það verður lagt fram á Alþingi.

     5.      Telur ráðherra það samræmast málefnalegum sjónarmiðum og jafnræði í skilningi 1. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, ef starfshópur skipaður fulltrúum ráðuneyta og opinberra stofnana af ráðherra hefur við vinnu sína samráð við afmarkaðan hóp hagaðila en undanskilur aðra hagaðila á viðkomandi málefnasviði frá því samráði?
    Lög um varnir gegnum hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, taka til æðstu stjórnenda, þ.e. ráðherra, ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra og sendiherra í Stjórnarráði Íslands. Lögin eiga ekki um við vinnu starfshópa á vegum ráðuneyta. Leitast var við að eiga samráð við fjölbreyttan hóp hagaðila á leigumarkaði svo að unnt væri að fá fram ólíkar skoðanir og áherslur ólíkra hagaðila. Líkt og fram hefur komið gafst öllum, þ.m.t. Hagsmunasamtökum heimilanna, kostur á að veita umsögn um tillögur starfshópsins í gegnum opið samráð þar um í samráðsgátt stjórnvalda sem varð m.a. til þess að Hagsmunasamtök heimilanna veittu umsögn um málið.
1    Niðurstöður átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði frá 19. janúar 2019.
     www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/FOR/Fylgiskjol-i-frett/A%cc%81taksh o%cc%81pur%20-%20tillo%cc%88gur.pdf
2    Niðurstöður starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði frá 19. maí 2022.
     www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/IRN/Frettatengd-skjol/Starfsh%C3%B 3pur%20um%20umb%C3%A6tur%20%C3%A1%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ismarka%C3% B0i%20-%20sk%C3%BDrsla%20-%20lokaeintak.pdf