Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 601 — 332. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Teiti Birni Einarssyni um Súðavíkurhlíð.
1. Hve oft hefur verið ófært milli Ísafjarðar og Súðavíkur (og þar af leiðandi milli Ísafjarðar og Reykjavíkur) á ári sökum tafa eða lokana á Súðavíkurhlíð síðastliðin tíu ár?
Í töflu að aftan er sýnt hversu oft hefur verið ófært milli Ísafjarðar og Súðavíkur á ári sökum lokana á Súðavíkurhlíð undanfarin tíu ár.
| Ár | Dagar | Klukkustundir |
| 2012 | 12 | 165 |
| 2013 | 7 | 111 |
| 2014 | 6 | 58 |
| 2015 | 15 | 140 |
| 2016 | 6 | 75 |
| 2017 | 4 | 36 |
| 2018 | 11 | 108 |
| 2019 | 3 | 26 |
| 2020 | 28 | 329 |
| 2021 | 6 | 80 |
| 2022 | 17 | 181 |
2. Hvað hefur Vegagerðin og eftir atvikum hlutaðeigandi sveitarfélög, Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur, ráðstafað miklum fjármunum í viðhald, viðbætur og mokstur á veginum við Súðavíkurhlíð til að halda honum ökufærum á síðastliðnum tíu árum?
Kostnaður Vegagerðarinnar vegna viðhalds, viðbóta og moksturs á veginum við Súðavíkurhlíð er sem segir í töflu að aftan. Ekki er talinn kostnaður við holuviðgerðir og annað minna viðhald sem er ekki skipt eftir vegarköflum.
| Verkefni | Tímabil | Heildarkostnaður |
| Snjóflóðavarnir | 2016–2019 | 199 millj. kr. |
| Styrkingar (sementsfestun) | 2013 | 91 millj. kr. |
| Snjóflóðavarnir | 2022 | 34 millj. kr. |
| Viðhald slitlaga, kafli 61–38 | 2013–2023 | 33 millj. kr. |
| Vetrarþjónusta * | 2010–2022 | 117 millj. kr. |
| Samtals | 474 millj. kr. | |
| * Vetrarþjónusta er áætluð þar sem Súðavík–Bolungarvík er einn kafli í þjónustu og allur kostnaður bókast á sama viðfang, þ.e.a.s. á allan kaflann. | ||
Vegurinn flokkast sem þjóðvegur og er veghald hans því á forræði Vegagerðarinnar. Sveitarfélögin Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur hafa ekki ráðstafað sérstökum fjármunum í viðhald, viðbætur og mokstur á veginum.