Ferill 539. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 628  —  539. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um endurnýjun lyfjaskírteina fyrir ADHD-lyf.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvernig hefur afgreiðslutími vegna endurnýjunar lyfjaskírteina fyrir ADHD-lyf þróast undanfarin þrjú ár? Þess er óskað að í svari verði tilgreindur eftir mánuði meðalafgreiðslutími og fjöldi umsókna, kyn þeirra einstaklinga sem lyfin voru ætluð og hversu margir einstaklinganna voru undir 18 ára aldri.
     2.      Hvað telur ráðherra að sé ásættanlegur hámarksafgreiðslutími og til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að bregðast við þegar afgreiðsla hefur farið yfir þau mörk?


Skriflegt svar óskast.