Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 648  —  549. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um kostnað vegna réttargæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hver voru útgjöld ríkissjóðs á ári frá 1. janúar 2018 til 1. október 2023 vegna réttargæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir því hvar umsókn er stödd í umsóknarferlinu, þ.e. hvort hún sé fyrir Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála eða dómstólum.
     2.      Hvaða lögaðilar hafa fengið greitt fyrir að veita framangreinda þjónustu og hversu háar voru þær greiðslur á hverju ári fyrir sama tímabil?


Skriflegt svar óskast.