Ferill 537. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 667 — 537. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra og gesti frá Grindavíkurbæ, innviðaráðuneyti, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Samtökum leigjenda, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem og Auði B. Jónsdóttur hæstaréttarlögmann.
Nefndinni barst ein umsögn sem er aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að veita tímabundinn húsnæðisstuðning til Grindvíkinga vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Frumvarpinu er þannig ætlað að koma til móts við aukinn kostnað þeirra sem þurfa að leigja sér húsnæði utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Frumvarpið er hluti af viðbrögðum ríkisstjórnar Íslands við þeirri óvissu sem ríkir í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga og er lagt fram í ljósi alvarlegs ástands í Grindavíkurbæ.
Frumvarpinu er ætlað að gilda um stuðning til að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa.
Að mati meiri hluta nefndarinnar felur frumvarpið í sér mikilvægt skref til að mæta þeim húsnæðisvanda sem Grindvíkingar standa frammi fyrir.
Hið leigða húsnæði (c-liður 2. mgr. 9. gr).
Nefndin fjallaði um c-lið 2. mgr. 9. gr. en í ákvæðinu er gert ráð fyrir að sértækur húsnæðisstuðningur verði einungis greiddur á grundvelli einnar umsóknar vegna sama húsnæðis á hverjum tíma. Rætt var um möguleika grindvískra fjölskyldna til að sameinast um leigu á húsnæði og fá stuðning til þess samkvæmt frumvarpinu. Meiri hluti nefndarinnar áréttar það sem fram kemur í athugasemdum við 9. gr. í greinargerð frumvarps um að tvær fjölskyldur geti leigt saman húsnæði enda komi skýrt fram í leigusamningum hvernig hið leigða húsnæði skiptist á milli þeirra. Meiri hluti nefndarinnar telur framangreint geta átt við um tvær eða fleiri fjölskyldur og telur tilvísun í greinargerð dæmi en ekki tæmandi.
Nauðsynlegar upplýsingar (11. gr. og 12. gr.).
Með 2. mgr. 11. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, skuli veita skriflegt umboð fyrir því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun afli nauðsynlegra upplýsinga og gagna til að afgreiða umsókn um sértækan húsnæðisstuðning og framfylgi lögum þessum að öðru leyti. Framangreint ákvæði snýr að því umboði sem umsækjandi veitir en í 1. mgr. 12. gr. frumvarpsins er fjallað um heimildir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til upplýsingaöflunar. Um er að ræða öflun upplýsinga frá skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, sveitarfélögum, sýslumönnum, leigusölum hins leigða húsnæðis og stjórnvöldum sem fara með framkvæmd laga um almannavarnir, sem og upplýsingar úr leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Öflun upplýsinga getur einvörðungu tekið til upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að framfylgja lögunum. Í ljósi þess að mánaðarleg fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings ræðst af fjölda heimilismanna en til að mynda ekki af tekjum þeirra kann upplýsingaöflun frá einhverjum framangreindra aðila að vera óþörf. Meiri hluti nefndarinnar áréttar að þrátt fyrir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi heimildir til öflunar upplýsinga frá öllum framangreindum aðilum sé sú upplýsingaöflun bundin því skilyrði að hún sé nauðsynleg. Stofnunin þurfi því að meta nauðsyn upplýsingaöflunar í öllum tilvikum áður en hún er framkvæmd.
Í tengslum við framangreint tekur meiri hlutinn fram að í 2. málsl. 3. mgr. 12. gr. frumvarpsins kemur fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tryggi að upplýsingaöflun og vinnsla persónuupplýsinga gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framfylgja lögunum. Ákvæðið er efnislega samhljóða ákvæði 3. mgr. 15. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016. Í greinargerð þess frumvarps er varð að þeim lögum er fjallað um samræmi ákvæðisins við persónuverndarlöggjöfina. Meiri hluti nefndarinnar áréttar að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun beri í störfum sínum, hvort sem er á grundvelli þessa frumvarps eða á grundvelli annarra laga sem stofnunin starfar eftir, ávallt að fylgja ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
Breytingar á húsaleigulögum (26. gr.).
Fyrir nefndinni var rætt um nauðsyn þess að gera þær breytingar á ákvæðum húsaleigulaga, nr. 36/1994, sem lagðar eru til í 1. tölul. 26. gr. frumvarpsins. Meiri hluti nefndarinnar lítur svo á að umræddar breytingar séu til þess fallnar að skerpa á réttarstöðu leigjanda og leigusala við þær aðstæður þegar hið opinbera hefur gefið út fyrirmæli um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæði stendur. Meiri hlutinn telur að þær efnisreglur sem finna má í 26. gr. frumvarpsins megi leiða af almennum réttarreglum kröfuréttar. Meiri hlutinn telur þó til bóta að mæla skýrt fyrir um þær í húsaleigulögum en áréttar að framangreint felur ekki í sér breytta réttarstöðu hvað varðar samningssamband leigjanda og leigusala í þeim aðstæðum sem hér um ræðir.
Í c-lið 1. tölul. 26. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um þá stöðu þegar leigjandi missir afnot af hinu leigða húsnæði til lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning. Fyrir nefndinni var bent á að ekki væri skýrt með nákvæmum hætti hvað væri átt við með lengri tíma. Meiri hlutinn telur rétt að taka fram að með lengri tíma sé ekki átt við að leigjandi missi afnot í einhverjar klukkustundir heldur sé hér átt við daga eða jafnvel vikur.
Endurskoðun (ákvæði til bráðabirgða).
Eins og fram kemur í 4. mgr. 15. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að heimilt verði að greiða sérstakan húsnæðisstuðning vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 10. nóvember 2023 til og með 29. febrúar 2024. Meiri hluti nefndarinnar áréttar að um er að ræða tímabundið stuðningsúrræði sem nauðsynlegt getur verið að framlengja eða gera breytingar á með hliðsjón af aðstæðum. Í ákvæði til bráðabirgða við frumvarpið er gert ráð fyrir því að lögin verði endurskoðuð fyrir lok framangreinds tímamarks. Meiri hluti nefndarinnar áréttar mikilvægi þess að fylgst verði vel með aðstæðum og gripið verði til frekari stuðningsaðgerða ef með þarf.
Kynning á úrræðinu.
Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að samhliða gildistöku þess úrræðis sem frumvarpið mælir fyrir um fari fram kynning á því og að tryggt verði að kynningin nái til þeirra hópa sem úrræðið á helst eftir að nýtast. Taka þarf sérstakt tillit til þess að íbúar í Grindavíkurbæ eru af ýmsum þjóðernum og því verður að tryggja að upplýsingar um úrræðið verði aðgengilegar á fleiri tungumálum en íslensku. Meiri hluti nefndarinnar hvetur sérstaklega til þess að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti upplýsingar um það úrræði sem frumvarpið kveður á um a.m.k. á ensku og pólsku auk íslensku.
Breytingartillögur.
Umsókn um stuðning – frestur (10. gr.).
Í umsögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til nefndarinnar, dags. 30. nóvember sl., var bent á að nauðsynlegt væri að umsókn um sértækan húsnæðisstuðning bærist fyrir ákveðið tímamark líkt og gert er ráð fyrir með umsóknir samkvæmt nýsamþykktum lögum um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Meiri hluti nefndarinnar tekur undir nauðsyn þess og leggur til breytingu á 10. gr. frumvarpsins þess efnis að umsóknir um stuðning verði að berast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í síðasta lagi 31. maí 2024. Hafi umsókn ekki borist fyrir það tímamark falli niður réttur til stuðnings á grundvelli fyrirhugaðra laga.
Skráning aðseturs Grindvíkinga.
Við meðferð málsins var athygli nefndarinnar vakin á því að ekki væri til staðar lagaheimild fyrir skráningu aðseturs innan lands fyrir einstaklinga sem hafa lögheimili hér á landi en þurfa að yfirgefa heimili sín að boði yfirvalda vegna neyðarástands. Um lögheimils- og aðsetursskráningu fer eftir lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018. Að gildandi lögum hefur Þjóðskrá Íslands ekki heimild til þess að skrá aðsetur einstaklinga innan lands nema í fáum og sérgreindum tilvikum, þ.e. vegna náms og veikinda, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna, auk sérheimildar fyrir alþingismenn í 2. mgr. 8. gr. sömu laga.
Í óviðráðanlegum tilvikum á borð við þau sem nú standa yfir í Grindavík, sem krefjast rýmingar tiltekinna svæða, er mikilvægt fyrir viðbragðsaðila og aðra að geta í kjölfarið staðsett viðkomandi íbúa. Hvorki í lögum um lögheimili og aðsetur né í reglugerð nr. 1277/2018 um lögheimili og aðsetur er að finna heimild til aðsetursskráningar vegna slíkra óviðráðanlegra ytri atvika (force majeure). Almennt er aðsetursskráning innan lands einungis heimil í húsnæði sem uppfyllir skilyrði lögheimilis skv. 3. mgr. 2. gr. laga um lögheimili og aðsetur, þ.e. í tiltekinni íbúð, eða eftir atvikum húsi, við tiltekna götu eða í dreifbýli sem er skráð sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá. Þegar svo háttar til að fjöldi einstaklinga þarf að yfirgefa heimili sitt, eins og gerst hefur í Grindavík, verður að víkja frá þeirri reglu og heimila aðseturskráningu í t.d. frístundahúsnæði og öðru húsnæði þar sem búseta væri almennt ekki heimiluð. Búsetunni er ætlað að vara tímabundið meðan einstaklingarnir með aðstoð stjórnvalda finna varanlegri lausn ef ekki er hægt að snúa aftur á heimili viðkomandi. Með vísan til þessa leggur meiri hluti til breytingu á frumvarpinu sem felur í sér að ákvæði til bráðabirgða verði bætt við lög um lögheimili og aðsetur sem bregst við framangreindri stöðu Grindvíkinga. Til að Grindvíkingar geti notið stuðnings samkvæmt frumvarpinu er lagt til að skráningin gildi afturvirkt frá 9. nóvember 2023.
Í nefndinni fór fram nokkur umræða um hvaða áhrif það gæti haft á skipulagsvald sveitarfélaga og tekjustofna þeirra að einstaklingar hefðu tímabundið aðsetur í atvinnuhúsnæði, þar sem lögheimilisskráning væri óheimil. Meiri hluti nefndarinnar vill undirstrika að markmið frumvarpsins er að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga. Hér er um að ræða tímabundna skráningu sem ekki er ætlað að hafa áhrif á byggðaþróun í sveitafélögum og felur ekki í sér breytingar á ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Endurreikningur og lokauppgjör (19. gr.).
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun benti nefndinni á að mikilvægt væri að marka lokauppgjöri húsnæðisstuðnings endi. Þannig yrði framkvæmdaraðila gert skylt við það tímamark að endurreikna fjárhæð húsnæðisstuðnings þegar endanlegar upplýsingar lægju fyrir um hvort aðstæður umsækjanda og/eða heimilismanna hefðu breyst á tímabilinu. Eftir atvikum lægi þá fyrir hvort um ofgreiðslu eða vangreiðslu hefði verið að ræða. Þegar kæmi til endurreiknings við lokauppgjör skyldi framkvæmdaraðili ávallt gæta þess að umsækjandi væri upplýstur um þær upplýsingar sem komið hefðu fram um breytingar á forsendum húsnæðisstuðningi. Skyldi framkvæmdaraðili veita umsækjanda kost á að tjá sig um þær upplýsingar sem lægju til grundvallar ákvörðun framkvæmdaraðila um endurreikning húsnæðisstuðnings áður en endanleg ákvörðun lægi fyrir, sbr. einnig 13. gr. stjórnsýslulaga. Hefði viðkomandi þannig möguleika á að koma andmælum á framfæri teldi hann upplýsingar um breyttar forsendur húsnæðisstuðnings rangar og eftir atvikum til að koma á framfæri annars konar athugasemdum.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingu á 19. gr. frumvarpsins þess efnis að endanlegt uppgjör Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á greiðslu húsnæðisstuðnings skuli liggja fyrir 90 dögum eftir að lokagreiðsla barst umsækjanda.
Upplýsingagjöf til slökkviliðs (2. mgr. 21. gr.).
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun benti nefndinni á nauðsyn þess að stofnunin fengi heimild til að tilkynna slökkviliði ef henni berast upplýsingar um að brunavörnum húsnæðis sem veittur er stuðningur fyrir eru ófullnægjandi. Í d-lið 2. mgr. 9. gr. frumvarpsins er sérstaklega tekið fram að stuðningur verði ekki veittur vegna húsnæðis sem fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum.
Samkvæmt 2. gr. laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019, skal stofnunin m.a. starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði brunavarna. Um þau verkefni fer samkvæmt lögum um brunavarnir, nr. 75/2000. Í 6. gr. laganna er kveðið á um að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vinni að samræmingu brunavarna í landinu og stuðli að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum. Nánar er svo fjallað um hlutverk stofnunarinnar á því sviði í hinum ýmsu ákvæðum laga um brunavarnir.
Með hliðsjón af því að í frumvarpinu er lagt til að unnt verði að veita húsnæðisstuðning vegna búsetu í atvinnuhúsnæði, ólíkt því sem almennt gildir um annan húsnæðisstuðning hins opinbera, telur meiri hluti nefndarinnar nauðsynlegt að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði fengnar viðhlítandi heimildir til að upplýsa slökkvilið um búsetu fólks í húsnæði, hafi þeim borist upplýsingar um að húsnæðið uppfylli ekki kröfur um brunavarnir. Með þeim hætti geti slökkviliðið rækt hlutverk sitt lögum samkvæmt. Er þá átt við upplýsingar sem stofnunin fær við framkvæmd laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Meiri hlutinn telur mikilvægt að svo verði í ljósi þeirrar hættu sem stafar af búsetu fólks í húsnæði þar sem brunavarnir eru ófullnægjandi.
Þá var bent á að almennt væru ekki gerðar sömu kröfur til brunavarna í atvinnuhúsnæði og til húsnæðis sem ætlað væri til búsetu. Í því sambandi áréttar meiri hlutinn að í frumvarpinu er lagt til grundvallar að réttur til sértæks húsnæðisstuðnings verði háður því skilyrði að viðkomandi leiguhúsnæði uppfylli kröfur til brunavarna sem gerðar eru til íbúðarhúsnæðis.
Gildistaka (2. mgr. 25. gr.).
Í 2. mgr. 25. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að ákvæði a-liðar 1. tölul. 26. gr. taki til leigusamninga sem gerðir eru eftir gildistöku laganna, þ.m.t. leigusamninga sem endurnýjaðir eru eða framlengdir eftir það tímamark. Þrátt fyrir að miðað sé við tímamark eftir gildistöku laganna sé aðilum heimilt að semja um að ákvæðið taki til leigusamninga sem gerðir voru fyrir gildistöku þeirra.
Með vísan til þess sem fram kemur að framan um ákvæði húsaleigulaga og almennar réttarreglur kröfuréttar telur meiri hluti nefndarinnar rétt að fella út ákvæðið enda sé breytingum á húsaleigulögum ætlað að skerpa á réttarstöðu leigjanda og leigusala við þær aðstæður þegar hið opinbera hefur gefið út fyrirmæli um brottflutning af fólks af hættusvæði þar sem húsnæði stendur.
Þá leggur meiri hluti nefndarinnar til breytingu á frumvarpinu sem er tæknilegs eðlis.
Að framangreindu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 3. gr.
a. Í stað orðanna „og tímabundið aðsetur“ í 1. tölul. komi: og aðsetur.
b. 6. tölul. falli brott.
2. Við 10. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Umsóknir um stuðning samkvæmt lögum þessum skulu berast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í síðasta lagi 31. maí 2024. Hafi umsókn ekki borist fyrir það tímamark fellur niður réttur til stuðnings á grundvelli laga þessara.
3. Við 19. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Endanlegt uppgjör Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á greiðslu á húsnæðisstuðningi skal liggja fyrir 90 dögum eftir að lokagreiðsla barst umsækjanda.
4. Við 21. gr.
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Fái Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við framkvæmd laga þessara upplýsingar um búsetu fólks í húsnæði sem leigt er til íbúðar og fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum, sbr. d-lið 2. mgr. 9. gr., skal stofnunin tilkynna slökkviliði hlutaðeigandi sveitarfélags þar um.
b. Fyrirsögn verði svohljóðandi: Upplýsingagjöf til sveitarfélaga og slökkviliðs.
5. 2. mgr. 25. gr. falli brott.
6. Við 26. gr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018: Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (I.)
Skráning aðseturs innan lands er heimil þeim einstaklingum sem höfðu lögheimili í Grindavíkurbæ hinn 9. nóvember 2023 og þurftu að yfirgefa heimili sitt samkvæmt ákvörðun yfirvalda hinn 10. nóvember 2023.
Skráningin gildir þar til lögreglustjóri tilkynnir Þjóðskrá Íslands að skilyrði hennar séu ekki lengur fyrir hendi. Einstaklingum er þó heimilt að halda aðsetursskráningu í allt að eitt ár frá tilkynningu lögreglustjóra.
Skráning aðseturs samkvæmt þessari grein nær til húsnæðis skv. 3. mgr. 2. gr. en einnig til skráningar í fjöldahjálparstöðvum, frístundabyggð og atvinnuhúsnæði.
b. (II.)
Skráning aðseturs Grindvíkinga í desember 2023 samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I gildir afturvirkt til 9. nóvember 2023.
Ásmundur Friðriksson og Bryndís Haraldsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Þau skrifa undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapalaga.
Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 4. desember 2023.
| Jóhann Páll Jóhannsson, 1. varaform. |
Líneik Anna Sævarsdóttir, frsm. |
Ásmundur Friðriksson. | |
| Orri Páll Jóhannsson. | Bryndís Haraldsdóttir. | Guðmundur Ingi Kristinsson. | |
| Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. | Óli Björn Kárason. | ||