Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 688 — 330. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um eldri iðngreinar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Á sér stað vinna innan ráðuneytisins við að afnema skráningar iðngreina sem ekki hafa verið kenndar og ekki hefur verið gefið út sveinsbréf í síðustu 10 ár?
Með reglugerð nr. 1629/2022 um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar, voru felldar brott 16 eldri iðngreinar eða þær sameinaðar öðrum skyldum iðngreinum. Breytingin endurspeglaði þróun á vinnumarkaði, framboð menntunar og fækkun þeirra sem taka sveinspróf á viðkomandi sviði á undanförnum árum.
Hvorki hefur verið aðhafst frekar vegna lögverndunar iðngreina né hefur sérstök vinna farið fram sem miðar að breytingum á reglugerð um löggiltar iðngreinar.