Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 763 — 353. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um ríkiseignir.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar nýbyggingar hafa verið byggðar á vegum ríkisins og fyrirtækja þess undanfarin 20 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélagi, ári, stærð, tegund húsnæðis, byggingarstigi, því hvenær hafist var handa og byggingarkostnaði.
2. Hver var fjöldi bygginga ríkisins ár hvert á fyrrnefndu tímabili, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
3. Hver var fjöldi fermetra ríkiseigna ár hvert á fyrrnefndu tímabili, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
4. Hvaða upphæð var greidd í fasteignagjöld af ríkiseignum ár hvert á fyrrnefndu tímabili, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
Í fyrirspurninni er óskað eftir upplýsingum um hversu margar byggingar hafi verið byggðar á vegum ríkisins og fyrirtækja þess síðustu tvo áratugi, sundurliðað eftir sveitarfélagi, byggingarári, stærð, tegund, byggingarkostnaði o.fl. Þá er einnig óskað eftir upplýsingum um fermetrafjölda, fjölda bygginga og fasteignagjöld, sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Í 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, kemur fram að þingmaður geti óskað upplýsinga frá ráðherra eða svars um opinbert málefni eða einstakt atriði með þingfyrirspurn. Í lögunum kemur jafnframt fram að fyrirspurn skuli vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli. Þannig er gert ráð fyrir að skrifleg svör séu að jafnaði ekki lengri en svo að þau mætti lesa á fimm til tíu mínútum, líkt og segir í athugasemdum með frumvarpi til laga um þingsköp Alþingis. Þá ber að hafa í huga að samkvæmt 6. mgr. 57. gr. þingskapalaga er ráðherrum settur þröngur tímafrestur, 15 virkir dagar, til að svara skriflegum fyrirspurnum.
Að mati ráðuneytisins er efni fyrirspurnarinnar það viðamikið að ekki er hægt að svara henni með einföldum hætti og í stuttu máli enda er verið að kalla eftir ítarlegum upplýsingum yfir 20 ára tímabil sem sundurliða þarf eftir stöðu í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Til að hægt sé að ná utan um þær upplýsingar þyrfti að fara yfir öll skilamöt sem gefin hafa verið út vegna einstakra framkvæmda á vegum ríkisins undanfarin 20 ár. Þá þyrfti jafnframt að kalla eftir sértækum upplýsingum frá öllum félögum í ríkiseigu yfir sama tímabil enda ljóst að ráðuneytið býr ekki yfir miðlægum upplýsingum um einstakar framkvæmdir félaga í eigu ríkisins. Því er ljóst að ekki er hægt að svara fyrirspurninni í stuttu máli í samræmi við 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.