Ferill 590. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 843 — 590. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um uppbyggingu aðstöðu til jarðræktarrannsókna á Hvanneyri.
Frá Bjarna Jónssyni.
1. Hefur fjármagn verið tryggt til uppbyggingar á aðstöðu til jarðræktarrannsókna á Hvanneyri fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) og hvenær verður hafist handa við verkefnið?
2. Verður LbhÍ gert kleift að nota söluandvirði Korpu eins og var kynnt til að reisa jarðræktarmiðstöð?
3. Hvenær hyggst ráðherra heimila byggingu húss á Hvanneyri til jarðræktarrannsókna og kennslu sem byggja á fyrir þær 200 millj. kr. sem Magnús Óskarsson ánafnaði skólanum m.a. til þessa og hvenær eru verklok áætluð?
Skriflegt svar óskast.