Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 872 — 218. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um aldursviðbót.
1. Hversu margir einstaklingar á ellilífeyrisaldri voru metnir með 75% örorku fyrir töku ellilífeyris?
Af þeim sem fengu greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun í júlí 2023 höfðu 8.256 einstaklingar rétt til örorkulífeyris fyrir töku ellilífeyris.
2. Hver yrði árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs ef aldursviðbót héldist ævilangt, í stað þess að hún falli niður þegar öryrki nær 67 ára aldri?
Árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs, ef aldursviðbót héldist ævilangt, er áætlaður um 600 millj. kr. á ársgrundvelli. Er þá miðað við fjárhæð bóta 1. júlí 2023 og byggt á fjölda ellilífeyrisþega í júlí 2023.