Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 886 — 464. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um Loftbrú og þróun flugfargjalda í innanlandsflugi.
1. Hversu margir hafa nýtt sér Loftbrú, niðurgreiðslu á innanlandsflugi fyrir íbúa á landsbyggðinni, frá því að til hennar var stofnað og hve oft hefur hver einstaklingur nýtt sér hana? Svar óskast sundurliðað eftir kyni og aldri.
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda niðurgreiddra flugleggja Loftbrúar frá september 2020 til og með október 2023, flokkað eftir kyni og aldri. Gögn um hversu oft hver einstaklingur hefur nýtt sér Loftbrú eru persónuupplýsingar. Öll vinnsla, þar á meðal miðlun slíkra upplýsinga, verður að byggjast á heimild í 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Þar sem heimild fyrir miðlun persónuupplýsinga af þessum toga er ekki fyrir hendi er ekki mögulegt að tilgreina hversu oft hver einstaklingur hefur nýtt sér Loftbrú.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hvernig hefur þróun á upphæð niðurgreiðslu verið eftir hverri flugferð, áætlunarleiðum og mánuðum?
Hlutfall afsláttar af fargjöldum hefur verið óbreytt frá því Loftbrú var tekin í gagnið, þ.e. 40%. Mikil aukning hefur orðið á notkun Loftbrúar ár frá ári.
Flugmiðaverð í gögnum Loftbrúar eru viðkvæmar markaðslegar upplýsingar og samkvæmt samningum við flugfélög í innanlandsflugi hefur hið opinbera ekki heimild til gefa út upplýsingar um hvernig þróun á upphæð niðurgreiðslu hefur verið eftir hverri flugferð, áætlunarleiðum og mánuðum.
3. Telur ráðherra að merkja megi breytingar á flugfargjöldum í innanlandsflugi frá því að stofnað var til Loftbrúar?
Á tímabilinu frá september 2020, þegar Loftbrúin hófst, er ekki að sjá að verðlag á flugfargjöldum í innanlandsflugi hafi þróast með öðrum hætti en verðlag almennt. Þetta má sjá við samanburð á vísitölu neysluverðs og undirvísitölu hennar nr. 07331 fyrir flugfargjöld innan lands.
4. Hvaða áhrif hefur Loftbrú haft á farþegafjölda í innanlandsflugi? Svar óskast sundurliðað eftir aldri, kyni og fjölskyldutekjum.
Ferðavenjukönnun innviðaráðuneytisins, SSH, Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Isavia var framkvæmd árið 2019 fyrir tilkomu Loftbrúarinnar og einnig árið 2022 eftir að Loftbrúin var innleidd. Eftirfarandi gröf sýna samanburð á notkun innanlandsflugs 2019 annars vegar og 2022 hins vegar, sundurliðað eftir aldri kyni og fjölskyldutekjum. Gröfin taka til landsbyggðarinnar þar sem höfuðborgarsvæðið er ekki hluti af Loftbrúarverkefninu. Niðurstöður ferðavenjukönnunarinnar sýna að karlar nýttu sér innanlandsflug í meira mæli en konur áður en stofnað var til Loftbrúar. Eftir innleiðingu Loftbrúar hefur þetta hins vegar breyst og dregið hefur úr muni milli kynja.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Niðurstöður ferðavenjukönnunarinnar sýna einnig breytingar á notkun innanlandsflugs með tilliti til aldurs. Yngstu aldursflokkarnir, 6–17 ára, fljúga þannig meira á meðan þeir sem eru 18–34 ára fljúga minna. Lítil breyting varð hjá öðrum aldurshópum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Að lokum sýna niðurstöður ferðavenjukönnunarinnar að tilkoma Loftbrúarinnar virðist hafa haft talsverð áhrif á notkun með tilliti til tekna. Tekjuhæstu hóparnir flugu rúmlega sjöfalt meira en þeir tekjulægstu árið 2019. Mjög hefur dregið úr þessum mun og þeir tekjuhæstu segjast nú fljúga rúmlega tvisvar sinnum oftar en þeir tekjulægstu.
Niðurstöðurnar sýna jafnframt að þeim sem nefna of hátt verðlag sem ástæðu fyrir að fljúga ekki hefur fækkað. Þessar niðurstöður gefa til kynna að verðlag er minni hindrun þegar kemur að notkun á innanlandsflugi eftir innleiðingu Loftbrúar og að einstaklingar í ólíkum tekjuhópum nýta sér innanlandsflug í jafnari mæli en áður.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.