Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 892 — 324. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um skaðleg innihaldsefni í papparörum.
1. Eru í gildi reglur eða reglugerðir hér á landi um notkun skaðlegra innihaldsefna í papparörum, t.d. PFAS-efna?
Í gildi eru reglur sem tryggja eiga að vörur, s.s. papparör, séu öruggar og skaði ekki notendur þeirra. Annars vegar er um að ræða reglur sem byggja á efnalöggjöfinni og eru á forræði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hins vegar reglur sem byggja á matvælalöggjöfinni og eru á forræði matvælaráðherra.
Reglur sem byggja á efnalöggjöf.
Efnalög, nr. 61/2013, og reglugerðir settar á grundvelli þeirra taka á ýmsum efnum sem hafa verið metin skaðleg fyrir heilsu manna og umhverfi. Reglurnar byggja að mestu á löggjöf Evrópusambandsins (ESB) sem innleidd hefur verið hér á landi. Papparöra er ekki getið sérstaklega í efnalöggjöfinni en í gildi eru tvær reglugerðir sem vert er að nefna í tengslum við kröfur sem varða vörur almennt, þ.m.t. papparör. Annars vegar er það reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem innleiðir m.a. reglugerð (EB) nr. 1907/2006. Hins vegar er reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni, sem innleiðir m.a. reglugerð (ESB) nr. 2019/1021.
Samkvæmt reglugerð nr. 954/2013 er í gildi bann við framleiðslu, markaðssetningu og notkun efna sem skráð eru í viðauka við viðkomandi gerð hvort sem þau eru ein og sér, í efnablöndum eða í hlutum. Takmarkanir samkvæmt reglugerð nr. 888/2015 eru margvíslegri. Þannig getur verið óheimilt að framleiða tiltekið efni eða efnahóp en takmarkanir geta einnig einskorðast við notkun efnanna í tilteknum gerðum vara eða í ákveðnum styrkleikum. Almenn ákvæði reglnanna gilda án tillits til gerðar vöru og taka m.a. til papparöra.
Hvað varðar PFAS-efni sérstaklega er um afar stóran hóp efna að ræða og enn sem komið er ná takmarkanir í reglum sem byggja á efnalöggjöf aðeins til hluta þeirra. Notkun PFAS-efna er auk þess mjög útbreidd og geta vörur sem efnunum er ekki vísvitandi bætt í engu að síður innihaldið þau sem óhreinindi. Samkvæmt fyrrnefndum reglugerðum eru eftirfarandi takmarkanir í gildi varðandi PFAS-efni.
− PFAS-efni sem eru bönnuð, sbr. reglugerð nr. 954/2013, eru:
− PFOS og afleiður þess.
− PFOA, sölt þess og PFOA-lík efni.
− PFHxS, sölt þess og PFHxS-lík efni.
− PFAS-efni sem enn fremur er bannað að framleiða, nota eða setja á markað, sbr. reglugerð nr. 888/2015, eru línulegar og greinóttar perflúorókarboxýlsýrur með kolefniskeðju sem er 9–14 kolefni að lengd, þ.m.t. sölt þeirra og hvers konar samsetningar, auk allra skyldra efna með perflúoróhóp sem er 8 til 14 kolefni að lengd.
Auk framangreindra gildandi reglna kom fram snemma á þessu ári tillaga frá Efnastofnun Evrópu um að takmarka framleiðslu, markaðssetningu og notkun um 10.000 PFAS-efna á EES-svæðinu. Það er stefna ESB að tryggja að notkun PFAS-efna verði afnumin í áföngum og markmiðið er m.a. að stuðla að eiturefnalausu umhverfi og að neysluvörur innihaldi ekki skaðleg efni. Þegar notkun drykkjarröra úr plasti var bönnuð innan EES-svæðisins jókst notkun drykkjarröra úr pappa en hugsanleg áhætta vegna PFAS-efna var hins vegar ekki metin sérstaklega í því samhengi. Niðurstöður rannsókna sýna að PFAS-efni hafa fundist í papparörum á Evrópumarkaði og hefur málið nú verið tekið til skoðunar á vettvangi ESB.
Reglur sem byggja á matvælalöggjöf.
Í ljósi notkunarsviðs sogröra gildir jafnframt um þau sértækari löggjöf um efni og hluti sem komast í snertingu við matvæli. Þessi löggjöf er á forræði matvælaráðuneytisins og byggir einnig á löggjöf ESB sem innleidd hefur verið hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu er í gildi reglugerð (EB) nr. 1935/2004 um efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, sem innleidd er í íslenskan rétt með reglugerð nr. 398/2008 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Þessi grunnreglugerð setur almenn skilyrði um efni og hluti í snertingu við matvæli og gildir um allar tegundir efna og hluta sem er ætlað að komast í snertingu við matvæli eða má búast við að komist í snertingu við matvæli. Samkvæmt reglugerðinni eiga efni og hlutir í snertingu við matvæli að vera örugg og framleiðsla þeirra að vera í samræmi við góða framleiðsluhætti þannig að efnisþættir þeirra berist ekki frá þeim við eðlileg og fyrirsjáanleg notkunarskilyrði yfir í matvæli í því magni sem gæti stofnað heilbrigði manna í hættu, haft í för með sér óviðunandi breytingu á samsetningu matvæla eða spillt skynmatseinkennum þeirra, s.s. lykt og bragði. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um að matvælasnertiefni séu rekjanleg í gegnum alla framleiðslukeðjuna frá framleiðanda til innpakkaðrar lokaafurðar. Í þessu sambandi er jafnframt vert að geta reglugerðar nr. 568/2008 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 2023/2006.
Reglugerð nr. 398/2008 gildir um allar tegundir matvælasnertiefna, þ.m.t. úr pappír og pappa. Í reglugerðinni er einnig gert ráð fyrir að hægt sé að setja sérstakar reglur um ákveðnar tegundir matvælasnertiefna. Í slíkum sérreglugerðum má m.a. setja reglur um hvaða efni er leyfilegt að nota við framleiðslu á matvælasnertiefnum og í hve miklu magni þessi efni mega berast yfir í matvæli. Sérreglur sem þessar hafa verið settar fyrir sumar tegundir matvælasnertiefna, t.d. úr plasti og leir, og sumum tegundum matvælasnertiefna ber að fylgja svokallað samræmisvottorð frá framleiðenda eða dreifingaraðila um að varan sé í samræmi við gildandi reglur á markaði. Slíkar reglur hafa ekki verið settar fyrir matvælasnertiefni úr pappír og pappa og þarf ekki samræmisvottorð fyrir þau. Engu að síður gilda almennar reglur um papparör sem komast í snertingu við matvæli, sem eiga að tryggja öryggi neytenda.
2. Séu slíkar reglur eða reglugerðir til, hvernig er þeim framfylgt? Ef ekki, hyggst ráðherra setja slíkar reglur?
Að því er snýr að framfylgd efnalaga, nr. 61/2013, og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra fer Umhverfisstofnun meðal annars með eftirlit með meðferð og markaðssetningu efna, efnablandna og hluta sem falla undir lögin og eftirlit með banni og takmörkunum á efnum, efnablöndum og efnum í hlutum. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun felst eftirlitið meðal annars í athugun á efnainnihaldi tiltekinna vara á markaði með sýnatöku og efnagreiningu. Í sumum tilfellum er eftirlitið framkvæmt í samstarfi við önnur Norðurlönd eða á grundvelli samevrópskra eftirlitsverkefna.
Samkvæmt Umhverfisstofnun hefur efnainnihald sogröra úr pappa ekki komið til sérstakrar skoðunar við eftirlit stofnunarinnar og sem stendur hafa ekki komið fram tilkynningar um papparör vegna frávika frá reglum um efnainnihald í tilkynningarkerfi ESB um hættulegar vörur á markaði (RAPEX/SafetyGate).
Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu er það á ábyrgð framleiðenda og innflutnings- og dreifingaraðila matvælasnertiefna að sjá til þess að þau séu örugg til notkunar fyrir matvæli. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með framleiðslu og innflutningi á matvælasnertiefnum og fara með markaðseftirlit, undir yfirumsjón Matvælastofnunar. Matvælastofnun hefur auk þess eftirlit með notkun matvælasnertiefna í þeim matvælavinnslum og matvælafyrirtækjum sem heyra undir eftirlit stofnunarinnar og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga fara með slíkt eftirlit í þeim tilfellum þegar matvælafyrirtæki heyra undir eftirlit þeirra.