Ferill 447. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 947  —  447. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Elvu Dögg Sigurðardóttur um aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku.


     1.      Hefur farið fram vinna við að móta heildstæða ungmennastefnu (e. national youth policy ) sem byggist á alþjóðlegum skilgreiningum og er unnin samkvæmt leiðarvísi Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir fyrir ungt fólk, líkt og flest aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa unnið? Ef svo er, hvernig hefur aðkomu ungmenna að þeirri vinnu verið háttað?
    Málefni ungs fólks ná þvert á málaflokka stjórnvalda, sveitarfélaga, stofnana og frjálsra félagasamtaka. Ekki hefur farið fram vinna við mótun heildstæðrar stefnu í málefnum ungs fólks í mennta- og barnamálaráðuneyti. Þá birtist stefna stjórnvalda í málefnum ungs fólks m.a. í styrkveitingum og áherslum í einstaka málaflokkum.

     2.      Hefur farið fram vinna við endurskoðun æskulýðslaga, nr. 70/2007, þar sem farið er eftir tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins um viðurkenningu á Landssambandi ungmennafélaga sem formlegu ungmennaráði þjóðarinnar (e. national youth council )?
    Landssamband ungmennafélaga er viðurkennt sem ungmennaráð þjóðarinnar og er fullgildur meðlimur í Evrópska ungmennavettvanginum (e. European Youth Forum - YFJ) en samkvæmt samþykktum vettvangsins getur aðeins eitt viðurkennt ungmennaráð frá hverju landi verið aðili að ungmennavettvanginum fyrir hönd landsins.
    Mennta- og barnamálaráðuneyti er með í undirbúningi endurskoðun æskulýðslaga. Í þeirri vinnu verður barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna í forgrunni ásamt tilmælum Evrópuráðsins um æskulýðsstarf þar sem áhersla er lögð á gæðastarf og inngildingu (CM/Rec(2017)4) og tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins um hlutverk ungmennaráða í stefnumótun um málefni ungmenna (CM/Rec(2006)1).

     3.      Með hvaða hætti er tryggð aðkoma ungs fólks að ákvarðanatöku um málefni sem það varða? Eftir hvaða lýðræðislegu ferlum er unnið við slíka ákvarðanatöku?
    Á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis eru málefni barna og ungmenna og samráð við þau í forgrunni og áhersla verið lögð á að efla möguleika þeirra til þess að hafa áhrif.     Á síðustu árum hefur ráðuneytið átt í reglulegu samtali og samráði við Landssamband ungmennafélaga, ungmennaráð Samfés og fulltrúaráð Samfés og önnur ungmennaráð og óskað eftir tilnefningum og aðkomu þeirra til að mynda í vinnu- og starfshópa og á fundum og á ráðstefnum um málefni tengd börnum og ungmennum, bæði hérlendis og erlendis. Þá má einnig nefna Æskulýðsráð sem hefur lögbundið hlutverk þegar kemur að æskulýðsmálum eins og að veita stjórnvöldum ráðgjöf, að gera tillögur um áherslur og stefnumótun í málaflokknum og að taka þátt í erlendu samstarfi um æskulýðsmál, sbr. 6. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007. Að auki má nefna að barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna fagnaði sérstaklega viðleitni Íslands til þess að efla þátttöku barna í ákvarðanatöku, m.a. við undirbúning skýrslu Íslands til nefndarinnar.
    Til stendur að móta leiðbeiningar fyrir stjórnvöld um aðkomu barna að ákvarðanatöku um málefni sem þau varða í samræmi við ákvæði barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

     4.      Í hvaða tilvikum hefur aðkoma ungmenna verið tryggð undanfarin fimm ár þegar lögum hefur verið breytt eða þegar ákvarðanir hafa verið teknar í málefnum sem varða þau? Í hvaða ráðgjafahópum eða starfshópum sem tengjast málefnum ungs fólks eiga fulltrúar þeirra sæti?
    Í samræmi við áherslur mennta- og barnamálaráðuneytis er samráð við börn og ungmenni í forgrunni og er leitast sem unnt er eftir aðkomu þeirra í málefnum sem þau varða. Aðkoma barna og ungmenna að frumvarpsgerð og ákvörðunum er þau varða er með margvíslegum hætti en ekki liggur fyrir tæmandi listi um aðkomu þeirra undanfarin fimm ár. Sem dæmi um beint samráð við börn og ungmenni má nefna eftirfarandi:
     *      Árið 2020 fór fram rafrænt samráð um barnvænt Ísland – framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem síðar var samþykkt árið 2021 sem þingsályktun Alþingis nr. 28/151. Samráðið var framkvæmt með netkönnun sem félagasamtök og framhaldsskólar sendu til barna og ungmenna. Alls tóku 785 börn þátt í könnuninni, ríflega þriðjungur á aldrinum 13–15 ára og um þriðjungur á aldrinum 16–17 ára. Voru niðurstöður samráðsins einnig nýttar í vinnu við farsældarlöggjöfina.
     *      Árið 2023 var haft samráð við framhaldsskólanema við undirbúning frumvarps til nýrra heildarlaga um skólaþjónustu. Samráðið fór fram með þeim hætti að Samband íslenskra framhaldsskólanema sendi út könnun og voru þátttakendur um 1000 ungmenni.
     *      Árið 2023 var einnig haft veigamikið samráð við börn á grunnskólaaldri. Annars vegar var um að ræða samráð í tengslum við undirbúning frumvarps til nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og hins vegar var um að ræða almenna úttekt á þátttöku barna og ungmenna á Íslandi. Sérfræðingur ráðuneytisins ferðaðist um allt land og heimsótti einn leikskóla og 12 grunnskóla og átti samráð við alls 329 börn á aldrinum 4–17 ára. Þar að auki var haft samráð við ýmis ungmennaráð og minnihlutahópa barna og ungmenna.
    Fulltrúar ungs fólks eiga sæti í Æskulýðsráði sem er skipað skv. 5. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007, og reglugerð um skipan fulltrúa æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka í Æskulýðsráð, nr. 1088/2007. Fimm af níu fulltrúum í ráðinu eru skipaðir samkvæmt tilnefningu æskulýðssamtaka. Að öðru leyti er leitast eftir tilnefningum og aðkomu þeirra í ráðgjafar- og starfshópa eftir því sem við á, t.d. í ráðgjafarhóp um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027, en ekki liggur fyrir tæmandi listi yfir hópana.