Ferill 639. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 952 — 639. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um stefnu í málefnum innflytjenda.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Hver er ástæða þess að ráðherra hvarf frá því að leggja fram tillögu til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks þegar þingmálaskrá 154. löggjafarþings var endurskoðuð?
Skriflegt svar óskast.