Ferill 655. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 968 — 655. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um gervigreind.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hefur ráðherra látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð?
2. Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
3. Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
Munnlegt svar óskast.