Ferill 667. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 999  —  667. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um útgjöld Tryggingastofnunar.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hversu margir einstaklingar nutu stuðnings frá Tryggingastofnun frá 1. janúar 2018 til 1. janúar 2024? Óskað er eftir sundurliðun eftir tegund lífeyris, aldri, kyni, ríkisfangi og ártali.
     2.      Hver voru útgjöld Tryggingastofnunar frá 1. janúar 2018 til 1. janúar 2024? Óskað er eftir sundurliðun eftir tegund lífeyris, aldri, kyni, ríkisfangi og ártali.


Skriflegt svar óskast.