Ferill 712. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1066 — 712. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lögfræðikostnað vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Frá Ingu Sæland.
1. Hvaða lögfræðingar og lögmannsstofur fengu greitt úr ríkissjóði fyrir lögfræðiþjónustu sem veitt var umsækjendum um alþjóðlega vernd árin 2022 og 2023? Hve mikið fékk hver aðili greitt á hvoru ári?
2. Hvernig er ákveðið hvaða lögfræðingar eða lögmannsstofur annast lögfræðiþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd?
3. Hvað greiðir ríkissjóður hátt tímagjald til lögfræðinga sem veita þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og hvaða viðmið gilda um hve margar vinnustundir lögfræðinga ríkissjóður greiðir á grundvelli sérhverrar umsóknar?
Skriflegt svar óskast.