Ferill 740. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1110  —  740. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um loðdýrarækt.

Frá Valgerði Árnadóttur.


     1.      Hvað eru mörg loðdýrabú starfrækt á Íslandi?
     2.      Hversu mörg loðdýr eru ræktuð í þeim búum?
     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að banna loðdýrarækt á Íslandi vegna dýravelferðarsjónarmiða og í ljósi þess að 25 ríki í Evrópu hafa bannað loðdýrarækt af þeim sökum og sífellt fleiri bætast við?


Skriflegt svar óskast.