Ferill 571. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1137  —  571. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um undanþágur frá fjarskiptaleynd.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margar beiðnir um undanþágur frá fjarskiptaleynd hafa verið lagðar fram á grundvelli 3. mgr. 89. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, eða samhljóða ákvæðis 3. mgr. 42. gr. laga um fjarskipti, nr. 81/2003, undanfarin tíu ár? Svar óskast greint eftir árum, brotaflokkum og þess hver óskar gagnanna. Þá komi fram hversu oft beiðnir voru samþykktar og hversu oft þeim var synjað. Jafnframt að greint sé frá því hversu oft upplýsingar sem fengust með þessari leið hafi orðið grundvöllur ákæru og hverjar málalyktir þeirra dómsmála voru.

    Fyrst er því til að svara að beiðni um undanþágu frá fjarskiptaleynd byggist í reynd ekki á 3. mgr. 89. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, sbr. áður 3. mgr. 42. gr. þágildandi laga nr. 81/2003, heldur fer lögregla fram á að fá gögn sem skylt er að varðveita samkvæmt því lagaákvæði á grundvelli XI. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Í nefndri 3. mgr. 89. gr. laganna er kveðið á um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að varðveita lágmarksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í sex mánuði í þágu rannsókna sakamála og almannaöryggis. Lágmarksskráning skal tryggja að fjarskiptafyrirtæki geti upplýst hver af viðskiptavinum þess var notandi tiltekins símanúmers, IP-tölu eða notandanafns, ásamt því að upplýsa um allar tengingar sem notandinn hefur gert, dagsetningar tenginga, hverjum var tengst og magn gagnaflutnings til viðkomandi notanda, svo og hvaða símanúmer tiltekinn viðskiptavinur var með á tilteknu tímabili. Fjarskiptafyrirtæki skal tryggja vörslu framangreindra gagna og er óheimilt að nota eða afhenda umræddar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi í samræmi við ákvæði 92. gr. laganna.
    Í 1. málsl. 1. mgr. 92. gr. laganna er kveðið á um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að verða við tilmælum lögreglu um aðstoð við rannsókn sakamáls enda styðjist þau við dómsúrskurð eða lagaheimild. Þá kemur fram í 2. mgr. 92. gr. að ekki megi án undangengins dómsúrskurðar heimila óviðkomandi aðilum að sjá skeyti, önnur skjöl eða annál um sendingar sem um fjarskiptavirkin fara eða hlusta á fjarskiptasamtöl eða hljóðrita þau. Fjarskiptafyrirtæki er þó rétt og skylt að veita lögreglu, í þágu rannsóknar sakamáls, upplýsingar um hver sé skráður notandi ákveðins símanúmers og/eða notandi vistfangs (IP-tölu), svo og hvaða símanúmer tiltekinn viðskiptavinur var með á tilteknu tímabili. Fjarskiptafyrirtæki er skylt að verða við kröfu lögreglu um að gögn séu afhent á formi samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Um aðgang lögreglu að upplýsingum um fjarskipti skal að öðru leyti fara samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Er mælt fyrir um skilyrði þess að fá úrskurð dómara til öflunar framangreindra gagna í 80. gr., sbr. 1. mgr. 83. gr. og 1. mgr. 84. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.
    Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá ríkissaksóknara sem á grundvelli 3. mgr. 85. gr. laga um meðferð sakamála annast eftirlit með aðgerðum skv. 80.–82. gr. laganna. Ríkissaksóknari tók fram að eina undanþágan frá fjarskiptaleynd sem ráða má af 3. mgr. 89. gr. og tilvísun í 92. gr. laga um fjarskipti sé skylda fjarskiptafyrirtækja til að afhenda lögreglu nefndar upplýsingar um notanda símanúmera og vistfangs. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara er ekki haldið utan um hversu oft lögregla fær upplýsingar af þessu tagi án úrskurðar.
    Ríkissaksóknari gefur árlega út skýrslu um framkvæmd eftirlits og beitingu aðgerða skv. 80.–82. gr. laga um meðferð sakamála, sbr. 3. mgr. 85. gr. laganna. Þessar skýrslur hafa verið gefnar út frá árinu 2017 eftir að lög nr. 103/2016 tóku gildi í byrjun árs 2017. Umbeðnar upplýsingar liggja fyrir í skýrslum 2017–2022 en samantekt upplýsinga vegna 2023 er ekki lokið. Tölulegar upplýsingar, á því formi sem óskað er, frá 2016 og fyrir þann tíma, liggja ekki fyrir. Þá liggja ekki fyrir upplýsingar um hversu oft dómstólar hafa hafnað beiðni lögreglu um afléttingu fjarskiptaleyndar. Eru því allar tölur í eftirfarandi töflu miðaðar við úrskurði þar sem fallist hefur verið á beiðni. Þá liggja ekki fyrir tölulegar upplýsingar um í hve mörgum tilfellum hefur verið ákært eða hverjar málalyktir hafa orðið í þeim málum þar sem framangreindra gagna hefur verið aflað í tengslum við rannsókn sakamáls. Gögn um fjarskipti eru í mörgum tilfellum eingöngu hluti af sönnunargögnum sem aflað er í tengslum við rannsókn sakamáls og sjaldan sem þessi gögn eru ein og sér grundvöllur sönnunar sem leiðir til útgáfu ákæru. Samkvæmt 1. mgr. 83. gr. laga um meðferð sakamála er það skilyrði fyrir því að dómari úrskurði um afléttingu fjarskiptaleyndar að ástæða sé til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þeim hætti. Þegar dómstólar fallast á kröfu lögreglu um afléttingu fjarskiptaleyndar hafa þeir staðfest mat lögreglu um að þetta skilyrði sé uppfyllt.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá upplýsingar um fjölda tilvika eftir árum og hversu margar kröfur einstök lögregluembætti hafa fengið úrskurð um fyrir dómi. Ekki liggja fyrir upplýsingar um brotaflokka heldur eingöngu heildarfjöldi úrskurða tengdur hverjum brotaflokki fyrir sig. Tekið skal fram að efni úrskurðanna er ekki sundurgreint og geta þeir jafnframt varðað hlustun á fjarskiptum eða húsnæði svo dæmi séu tekin. Er því ekki unnt að svara þessum hluta fyrirspurnarinnar að öðru leyti en því að áætlað er að u.þ.b. helmingur úrskurða tengist rannsókn lögreglu á fíkniefnabrotum. Í eftirfarandi töflu er einnig getið um þau skipti þegar óskað hefur verið eftir upplýsingum um rétthafa með úrskurði dómara.
    Að öðru leyti vísast til skýrslna ríkissaksóknara um eftirlit með símhlustunum sem finna má á heimasíðu embættisins.

    Vinna við fyrirspurn þessa tók 8 tíma hjá ríkissaksóknara og 4 tíma hjá dómsmálaráðuneytinu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.